Clapton bíður eftir Draumey 1. desember 2009 06:00 ellen kristjánsdóttir Ellen hefur gefið út sína fyrstu plötu í tvö ár sem nefnist Draumey.fréttablaðið/anton
Ellen Kristjánsdóttir gaf nýlega út sína fyrstu plötu í tvö ár. Hún nefnist Draumey og hefur að geyma hugljúf lög sem flest eru eftir Ellen og Pétur Ben, sem einnig tók upp plötuna. „Ég var búin að liggja á hálfkláruðu efni mjög lengi. Svo kom þetta tilboð um að hita upp fyrir Eric Clapton í fyrra. Þá fórum við saman og æfðum nokkur lög og svo fór ég upp í sveit í janúar á þessu ári," segir Ellen. „Ég var ein með hundinn í viku með upptökutæki, hörpu og gítar og tók upp alveg rosalega mikið af lögum." Hún segir að Clapton hafi hvatt sig til dáða við plötugerðina á tónleikunum í Egilshöllinni „Hann hlustaði allan tímann og sagði: „Þið verðið að klára þetta og senda okkur plötu þegar þið eruð búin með hana"." Draumey hefur þó enn ekki ratað til gítarsnillingsins. „Ég er ekki búin að senda hana. Ég verð að fara að gera það. Hann fékk Sálmana. Það var eina platan sem ég var með í bílnum," segir hún og hlær. Hún bætir við að Draumey sé nokkurs konar uppgjörsplata þar sem hún syngur um æsku sína í San Francisco, föður sinn heitinn og unglingsár einnar af dætrum sínum. Ellen hefur í nógu að snúast þessa dagana því fjölmargir tónleikar eru fram undan. Á miðvikudaginn heldur hún tvenna aðventutónleika með bróður sínum KK í Borgarleikhúsinu og 5. desember syngur hún með Borgardætrum á stórtónleikum Björgvins Halldórssonar. 10. desember verða síðan útgáfutónleikar vegna nýju plötunnar í Fríkirkjunni. Jafnframt eru fernir tónleikar á Rósenberg með Borgardætrum fyrirhugaðir. - fb
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira