Sinfónískir áhugamenn 29. ágúst 2009 04:45 tónlist Sinfóníuhljómsveit áhugamanna er að hefja æfingar og hana vantar strengjaleikara.mynd/sinfóníuhljómsveit áhugamanna
Þær eru ekki margar sinfóníuhljómsveitirnar sem starfa í landinu. Tvær þeirra eru skipaðar atvinnumönnum, tvær áhugafólki, önnur ungum hljóðfæraleikurum og hin fullnuma tónlistarfólki sem starfar sem áhugamenn. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna var stofnuð 1990 og hefur starfað óslitið síðan. Hljómsveitina skipa að jafnaði fjörutíu til sextíu manns. Hún starfar frá september og fram í maí ár hvert. Nú er nýtt starfsár að hefjast í þessum hóp. Á þriðjudagskvöldið verður fyrsta æfing nýs starfsárs. Hljómsveitin mun nú sem fyrr takast á við mörg helstu verk tónbókmenntanna og halda minnst fimm tónleika á starfsárinu. Fyrstu tónleikar verða 18. október og eru þeir framlag sveitarinnar til Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis. Þá verða frumflutt tvö verk eftir Oliver Kentish og kynntir tveir ungir og upprennandi einleikarar, Baldvin Oddsson og Magnús Pálsson. Einnig verður flutt Sinfónía nr. 9 eftir Dvorák, „Frá nýja heiminum“. Á aðventunni gengur hljómsveitin til samstarfs við kór Neskirkju og flytur Messías eftir Händel. Eftir áramót verða þrennir tónleikar og leikin verk eftir Haydn, Samuel Barber, Bach, Mozart, Mendelssohn, Dvorák og Brahms, meðal annarra. Einnig verður leikinn konsert fyrir pákur eftir átjándu aldar tónskáldið Georg Druschetzky, og verður það í fyrsta sinn sem þetta verk er flutt hér á landi. Einleikari verður Frank Aarnink. Gunnar Kvaran sellóleikari mun leika einleik með hljómsveitinni í maí og Michael Clarke verður einsöngvari á tónleikum í mars. Aðalhljómsveitarstjóri sveitarinnar er Oliver Kentish. Æfingar eru eitt kvöld í hverri viku, á þriðjudagskvöldum frá hálfátta til tíu, og fara fram í Seltjarnarneskirkju. Hljómsveitin getur bætt við sig hljóðfæraleikurum, einkum í strengjadeildum. Þeir sem áhuga hafa geta haft samband við stjórnandann, Oliver Kentish, eða einfaldlega mætt á æfingu og athugað málið á þriðjudagskvöld.- pbb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira