Karpað um vinnsluhraða ríkisstjórna 13. febrúar 2009 04:00 Fyrrverandi og núverandi. Geir H. Haarde og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ræddu efnahagsmál á Alþingi í gær. Fréttablaðið/GVA
Þingmenn allra flokka á Alþingi eru sammála um helstu forgangsverkefni næstu vikur og mánuði. Þau lúta að því að endurreisa bankakerfið, koma hjólum atvinnulífsins af stað, bregðast við atvinnuleysinu, verja heimilin gjaldþroti, ná verðbólgunni niður og lækka vexti. Ekki er að merkja ágreining milli flokka um hvaða leiðir skuli farnar. Í það minnsta kom hann ekki fram í umræðum um efnahagsmálin á Alþingi í gær. Þar skiptust menn á að lýsa hve ástandið væri slæmt og hve mikilvægt væri að bregðast við. Þunginn í umræðunni snerist hins vegar um kosti og galla ríkisstjórna. Sjálfstæðismenn segja núverandi stjórn hafa gert eitt og annað gott en það sé meira eða minna afrakstur verka sem þeir settu af stað. Því eru núverandi ráðherrar ósammála. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, hvatti ríkisstjórnina til að halda fast við áætlun þá er samdist um við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Hann fagnaði tillögum nefndar Mats Josefsson um endurreisn bankakerfisins og minnti á að það var hann sem fékk Mats til starfa. Þá harmaði hann að ríkisstjórnin hefði „stuggað“ við formönnum bankaráða Glitnis og Kaupþings. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði ákvarðanafælni hafa einkennt sjálfstæðismenn í fyrri ríkisstjórn. Hræðsla þeirra hafi komið í veg fyrir endurskipulagningu Seðlabankans og framgang annarra mála. Sagði hún margt í bígerð og upplýsti að unnið væri af fullum krafti samkvæmt samkomulaginu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra furðaði sig á að Sjálfstæðisflokkurinn hefði meiri áhyggjur af högum nokkurra flokksgæðinga en atvinnuleysi þúsunda. Sagði hann ríkisstjórnina hafa gert meira á tíu dögum en fyrri ríkisstjórn gerði á nokkrum mánuðum. Þá gaf hann í skyn að forveri hans í ráðuneytinu, Árni M. Mathiesen, hefði setið með hendur í skauti allan janúarmánuð. Kristinn H. Gunnarsson, Frjálslynda flokknum, fullyrti að ríkisstjórnaskiptin hefðu tafið mjög framgang mála á Alþingi og að ný ríkisstjórn hefði ekki annað á dagskrá sinni en að skoða mál og athuga. Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, hvatti til samvinnu í þinginu enda krefjist almenningur þess að stjórnmálamenn standi nú saman sem einn maður. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Sjá meira