Syngja til styrktar Fjölskylduhjálp 10. desember 2009 04:15 ólatónleikarnir til styrktar Fjölskylduhjálp fara fram í Víðistaðakirkju í kvöld og hefjast klukkan 20. Fréttablaðið/Anton „
Ég fer reglulega með barnaföt og leikföng upp í Fjölskylduhjálp og hef bara séð raðirnar lengjast,“ segir Soffía Karlsdóttir söngkona. Hún stendur ásamt hópi fólks fyrir jólatónleikum til styrktar Fjölskylduhjálp í kvöld. Tónleikarnir fara fram í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði og hefjast klukkan 20. „Þegar ég fór upp í Fjölskylduhjálp í byrjun nóvember náði röðin út á götu. Fólk er að ganga þangað langar leiðir með börnin sín, kerrur og poka og það er orðið hálf óraunverulegt að sjá þetta. Þá hringdi ég í Guðrúnu Árnýju systur mína og spurði hvort við gætum ekki gert eitthvað og við höfðum samband við þessar æðislegu stelpur,“ segir Soffía. Söngkonurnar sem koma fram á tónleikunum ásamt þeim systrum eru Dísella, Esther Jökulsdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir og Margrét Árnadóttir. Um undirleik sjá þeir Óskar Þormarsson, Vignir Þór Stefánsson, Ólafur Þór Kristjánsson og Pétur Valgarð Pétursson. „Allir vilja hafa þetta ofsalega flott og við erum búnar að æfa vel. Það er mikill metnaður fyrir því að hafa þetta flotta tónleika og eftirminnilega stund. Það voru allir boðnir og búnir að leggja sína vinnu í þetta og við fengum meira að segja allt niður í posann gefins,“ útskýrir hún. Miðasala verður við innganginn og rennur allur ágóði óskiptur til Fjölskylduhjálpar. „Fólk hefur verið að spyrja hvort það sé ekki forsala eða hvort hægt sé að panta miða, þannig að við eigum von á góðri mætingu,“ segir Soffía.- ag
Mest lesið „Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ Lífið Húsó fjarlægðir af Rúv Menning Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Lífið Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Samfylkinguna Lífið Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Lífið Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Lífið Ekki fyrsti fótboltamaður Binna: „Við getum alveg hist aftur og riðið“ Lífið Tinna Hrafns og Sveinn selja á Laugarásveginum Lífið Atvinnulaus aumingi trompar dauðakölt Gagnrýni Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Lífið Fleiri fréttir Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Samfylkinguna „Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Fyrrverandi bassaleikari Scorpions látinn Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni „Mig langar bara að vera upprétt og sterk“ Tinna Hrafns og Sveinn selja á Laugarásveginum Löggan byrjar á TikTok með því að gasa Egil og Rikka Kvenskælingar svekktir eftir að hafa lent í hakkavél MR tvisvar í röð Heated Rivalry-stjörnur verða á Ólympíuleikunum Fengu gefins sjö nýjar þrautir frá breska þrautahöfundinum Mari og Njörður eiga von á sumarbarni Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Kemur Önnu miðli til varnar: „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni“ Ofurnæmni Önnu Birtu: Hefur heyrt hugsanir fólks í Kringlunni Désirée prinsessa látin Staðgöngumóðir „öruggasta leiðin“ til að stækka fjölskylduna Auglýsing Blush sé fyrir neðan allar hellur Kynntist manninum á Tinder í Covid Vance á von á barni Heiða og Hildur djömmuðu með Breiðhyltingum Ekki fyrsti fótboltamaður Binna: „Við getum alveg hist aftur og riðið“ Ótrúlegur dagur Vignis: Lottóvinningur, 180 í pílu og sigur á Carlsen Vesturbæingar blótuðu þorrann langt fram á nótt Valdi sér fylkingu í Beckham-deilunum Móðirin hljóp frá þremur börnum og „fór í Kanann“ „Ég hef aldrei séð dansandi poka“ Eldri bróðir lagði línur að lífinu í New York Sjá meira