Innlent

Seðlabankastjórar hitta viðskiptanefnd í dag

Bankastjórar Seðlabankans koma fyrir viðskiptanefnd Alþingis klukkan níu til að svara spurningum nefndarmanna um álit bankans á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um Seðlabankann, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að stöður bankastjóranna þriggja verði lagðar niður.

Mikill fjöldi umsagnaraðila hefur komið fyrir viðskiptanefnd vegna frumvarpsins og samkvæmt heimildum fréttastofunnar sett fram margar og ólíkar athugasemdir við einstakar greinar þess. Því er reiknað með að töluverðar breytingar verði á frumvarpinu í nefndinni, en stjórnarliðar vilja helst afgreiða það til annarrar umræðu áður en þessi vika er liðin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×