Yfir fjögurhundruð menningarviðburðir í miðborginni Helga Arnardóttir skrifar 22. ágúst 2009 18:56 Það var allt að gerast í miðborg Reykjavíkur í dag. Mynd/Vilhelm
Miðborg Reykjavíkur iðaði öll af lífi og menningu í dag þar sem rúmlega fjögur hundruð list- og menningarviðburðir fara fram. Forsvarsmenn segja sköpunargleðina blómstra í kreppunni. Búist er við um hundrað þúsund manns í miðbænum í kvöld. Listviðburðir í miðbænum hófust klukkan tíu í morgun en fólk fór að týnast í bæinn síðdegis. Rigningarskúr var fram eftir degi en sólin gægðist á milli skýjanna af og til. En Menningar- og listviðburðir voru á hverju horni. Menningarfylgd Birnu Þórðardóttur var á sínum stað og mikið var um að vera á Óðinstorgi þar sem söfnunarátakið Á rás fyrir Grensás fór fram og var Edda Heiðrún Bacmann þar fremst í flokki. Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi bauð í árlegt vöfflukaffli á heimili sínu og var fullt út úr dyrum. Þá heilluðu seiðandi tónar tónlistarkonunnar Únu alla upp úr skónum og á Laugaveginum var mikið líf þar sem gestir menningarnætur fengu knús í boði hlutverkaseturs. Rokktónar Retro Sefson hljómuðu úr skífunni og ljúfir tónar Þorvaldar Halldórssonar úr kirkjuhúsinu. Svo var salsakennsla og dans stiginn á Bríetartorgi. Skúli Gautason verkefnastjóri menningarnætur segir kreppuna ekki hafa bitnað á hátíðinni. Stórtónleikar hefjast svo klukkan átta í hljómskálagarðinum með Þursaflokknum, Páli Óskari, Pöpum og fleirum. Þá hefst hin víðfræga flugeldasýning klukkan ellefu og stendur til hálf tólf. Skotið verður upp við nýja tónlistar-og ráðstefnuhúsið. Búist er við að hundrað þúsund manns verði í miðbænum í kvöld. Lögregla vill koma þeim tilmælum til gesta menningarnætur að leggja ökutækjum í útjaðri miðborgarinnar eða nýta sér almenningssamgöngur.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Sjá meira