Buðu Neil Young til Íslands 5. september 2009 06:00 Tónlistargoðsögninni Neil Young hefur verið boðið að koma hingað til lands ásamt Jonathan Demme sem leikstýrði Lömbin þagna. „
Við erum búin að setja okkur í samband við framleiðendurna. Við ætlum að reyna að fá þá báða. Það sakar ekki að reyna,“ segir Hrönn Marinósdóttir hjá RIFF. Forsvarsmenn Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, hafa boðið tónlistargoðsögninni Neil Young og leikstjóranum Jonathan Demme að koma hingað til lands. Tilefnið er sýning heimildarmyndarinnar Neil Young Trunk Show í leikstjórn Demme sem verður lokamynd hátíðarinnar 26. september. Myndin verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto 14. september. Fari svo að þeir félagar þekkist boðið yrði koma þeirra hingað til lands mikill fengur fyrir íslenska tónlistar- og kvikmyndaáhugamenn. Demme vann Óskarsverðlaunin árið 1992 fyrir spennutryllinn The Silence of the Lambs þar sem Anthony Hopkins fór á kostum sem mannætan Hannibal Lecter. Meðal annarra verka Demmes eru Philadelphia sem tryggði Tom Hanks Óskarinn, The Manchuraian Candidate og Rachel Getting Married. Neil Young Trunk Show var tekin upp á tónleikum Neil Young í litlum sal í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Til þess að komast nær Young var að mestu notast við léttar tökuvélar. Myndin er eins konar viðbragð Demmes við eigin heimildarmynd um Young, Heart Of Gold, sem var mun flóknari í framleiðslu. - fb
Mest lesið Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Lífið Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Lífið Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Lífið Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Tónlist Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Lífið Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Lífið Þau allra nettustu á Met Gala Tíska og hönnun Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Gagnrýni Fleiri fréttir VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Typpi í einu gati, tæki í öðru Ný stikla úr GTA VI Allt til alls til að kenna björgun mannslífa Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Sígild sumarterta að hætti Dana Verzló vann MORFÍs Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Jóhanna og Geir trúlofuðu sig við Eiffel-turninn Plönuðu skemmtileg stefnumót fyrir fjögur þúsund krónur Fyrsti opinberi kossinn í þrítugsafmælinu Réttarhöld yfir Diddy hafin: Á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér Lára og lyfjaprinsinn eignuðust stúlku Stjörnulífið: Drottningar á Bessastöðum Áttu sturlaða stund á Times Square The Wire og Sopranos-leikari látinn Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Björgólfur og Kristín í fimmtugsafmæli Beckham Katrín Tanja og Brooks eiga von á barni Frábær þjóðbúningamessa í Fljótshlíð Tónleikar Lady Gaga æðislegir og öryggisgæslan svakaleg Pedro Pascal fékk sér að borða á Kaffi Vest Sjá meira