Keflavíkurgangan er markaðstilraun 7. nóvember 2009 13:05 Grímur Atlason, sveitarstjóri Dalabyggðar.
Grímur Atlason, sveitarstjóri Dalabyggðar, gefur lítið fyrir fyrirhugaða göngu á milli Vogaafleggjara og Kúagerði sem kölluð hefur verið Keflavíkurganga og verður farin á á morgun. Sveitarstjórinn kallar gönguna Kúagerðisgönguna og segir hana markaðstilraun til að beina athygli frá raunverulegum vanda Suðurnesjamanna. Gangan verður farin á morgun frá Vogaafleggjara klukkan hálfellefu, gengnir verða 10 kílómetrar að Kúagerði þar sem samstöðufundur verður haldinn klukkan tvö. Undirbúningshópur Keflavíkurgöngunnar krefst þess að stjórnvöld gangi í takt og mæti hópnum á miðri leið. Hópurinn vill koma af stað vitundarvakningu um stöðu atvinnumála á Suðurnesja. „Það að ganga frá Vogum að Kúagerði og kalla það Keflavíkurgöngu er nokkuð skrítið en látum það liggja á milli hluta. Hins vegar þykir mér merkilegt að forsvarsmenn Reykjanesbæjar o.fl. skuli ganga kröfugöngu þar sem lögð er áherslu á úrbætur í atvinnumálu á Suðurnesjum. Hverjir skulda Suðurnesjamönnum aðgerðir," segir sveitarstjórinn í pistli á heimasíðu sinni. Grímur segir ábyrgðina ekki liggja hjá ríkisstjórninni heldur Suðurnesjamönnum sjálfum og stjórnmálamönnum á svæðinu sem völdu að tefla djarft. „Kúagerðisgangan er þannig aðeins markaðstilraun þar sem markmiðið er að beina kastljósinu frá hinum raunverulegum vanda Suðurnesjamanna. Þó pólitískir vinir í Reykjavík vilji fórna vatnsbólum sínum fyrir héraðshöfðingjana á Suðurnesjum stendur ríkisstjórnin enn í lappirnar. Ég þakka herra mínum fyrir umhverfisráðherra sem hlustar ekki á patent bull. Umhverfisráðuneytið er ekki skúffa í Fasteignafélaginu Reykjanesbær," segir sveitarstjórinn að lokum.
Tengdar fréttir Keflavíkurgangan farin á morgun Þverpólitísk Keflavíkurganga verður farin á morgun frá Vogaafleggjara klukkan hálfellefu, gengnir verða 10 kílómetrar að Kúagerði þar sem samstöðufundur verður haldinn klukkan tvö. 7. nóvember 2009 11:21 Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira
Keflavíkurgangan farin á morgun Þverpólitísk Keflavíkurganga verður farin á morgun frá Vogaafleggjara klukkan hálfellefu, gengnir verða 10 kílómetrar að Kúagerði þar sem samstöðufundur verður haldinn klukkan tvö. 7. nóvember 2009 11:21