Geir í rauða hverfinu í Mosó 29. ágúst 2009 02:00 í rauða hverfinu „Geir H. Haarde“ unir sér greinilega vel í rauða hverfinu í Mosfellsbæ.
Öll hverfi Mosfellsbæjar verða skreytt mismunandi litum á hinni árlegu bæjarhátíð sem hófst í gær og lýkur á morgun. Litirnir verða bleikir, bláir, gulir og rauðir eftir því um hvaða hverfi er að ræða. „Það var gaman að keyra um sveitina í gærkvöldi [fimmtudagskvöld] og sjá samstöðuna í fólki að skreyta. Menn fara sumir hamförum í þessu, sérstaklega í gula hverfinu. Það verður tvímælalaust mest skreytt þar,“ segir Davíð Þór Einarsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, sem sjálfur býr í rauða hverfinu. „Það er mjög góð tilfinning að vera í rauða hverfinu,“ segir hann og hlær. „Þetta er þriðja árið í röð sem við förum af stað með svona litadæmi og það hefur alltaf verið meiri og meiri þátttaka.“ Í einu húsi í rauða hverfinu býr Helena Kristinsdóttir framleiðandi. Skreytingin þar er heldur óvenjuleg því sjálfur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, mun sitja á veröndinni fyrir framan húsið alla hátíðina, eða réttara sagt staðgengill hans. „Það hefur ekkert heyrst af honum undanfarið þannig að við ákváðum að leyfa honum að taka þátt. Við ætlum að vera með partí í götunni fyrir framan húsið og hann ætlar að vera með. Það náðist ekki í hann persónulega og þess vegna ætlum við að hafa staðgengil,“ segir Helena. Dómnefnd mun skera úr um fallegustu húsin í hverjum lit fyrir sig og í verðlaun verður heiðurinn sem hlýst af því að verða fyrir valinu. - fb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira