Safna höfuð-leðrum nasista 27. ágúst 2009 05:00 inglorious basterds Eli Roth og Brad Pitt í stríðsmyndinni Inglorious Basterds sem er nýkomin í kvikmyndahús hérlendis.
Stríðsmynd Quentins Tarantino, Inglorious Basterds, hefur hlotið mjög góðar viðtökur og er af mörgum talin hans besta mynd í langan tíma. Einkennismerki hans, löng samtöl og blóðug ofbeldisatriði, eru að sjálfsögðu á sínum stað. Inglorious Basterds, sem er nýkomin í bíó hérlendis, gerist í Frakklandi í síðari heimsstyrjöldinni eftir að Þjóðverjar hafa ráðist inn í landið. Hópur hermanna sem kallar sig Inglorious Basterds er sendur þangað frá Bandaríkjunum til að drepa nasista og taka höfuðleður þeirra sem minjagripi. Yfirmaður þeirra er Aldo Raine (Brad Pitt) sem kallar ekki allt ömmu sína. Inn í söguna fléttast frönsk gyðingastúlka, eigandi kvikmyndahúss í París sem þýskir hermenn vilja nota til að frumsýna nýjustu áróðursmynd sína. Inglorious Basterds var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor og fékk góð viðbrögð gagnrýnenda. Tarantino var alltaf ákveðinn í að frumsýna myndina á hátíðinni, enda á hann góðar minningar þaðan frá árinu 1994 þegar hann vann Gullpálmann fyrir Pulp Fiction. Framleiðsla Basterds hófst aðeins fjórum mánuðum eftir að hann lauk við handrit myndarinnar í júlí í fyrra og útkoman leit síðan dagsins ljós í Cannes, rétt eins og og leikstjórinn hafði vonast eftir. Tarantino er þekktur fyrir að blása nýju lífi í feril leikara í myndum sínum. Besta dæmið um það er John Travolta í Pulp Fiction, auk þess sem Pam Grier fékk nýtt líf í Jackie Brown, rétt eins og David Carradine í Kill Bill 2, þó svo að það hafi reyndar ekki varað lengi. Í Inglorious Basterds fer austurríski leikarinn Christophe Waltz á kostum sem gyðingaveiðarinn Hans Landa. Hann var kjörinn besti leikarinn á Cannes-hátíðinni og margir hafa spáð honum Óskarstilnefningu á næsta ári. Waltz ber Tarantino vel söguna og segir hann fagmann fram í fingurgóma. „Quentin er hvorki afkastamikill né stórkostlegur handritshöfundur en hann er snillingur í að semja fyrir leikara. Hann skapaði þessa gríðarstóru veröld og bauð mér að taka þátt. Eftir að hafa unnið sem leikari í nokkur ár áttarðu þig á því að það eru mjög litlar líkur á því að þér verði boðið eitthvað í líkingu við þetta,“ segir Waltz. Þýska leikkonan Diane Kruger, sem lék Helen í myndinni Troy, flaug sérstaklega til Berlínar þar sem tökur á myndinni stóðu yfir til að sannfæra Tarantino um að hún væri rétta manneskjan í hlutverk njósnarans Bridge Von Hammesmark. „Ég er með miklu meira sjálfstraust eftir að hafa leikið í þessari mynd. Hvort sem hún fær góðar eða slæmar viðtökur þá vakti hann eitthvað upp í mér sem ég vissi ekki að ég ætti til,“ segir hún. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira