Enski boltinn

McCann frá í þrjá mánuði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Chris McCann í leik með Burnley.
Chris McCann í leik með Burnley. Nordic Photos / Getty Images

Chris McCann, leikmaður Burnley, verður frá næstu þrjá mánuðina vegna hnémeiðsla. Hann meiddist í leik Burnley gegn Sunderland á laugardaginn.

McCann meiddist í fyrri hálfleik og kom Jóhannes Karl Guðjónsson inn á sem varamaður í hans stað.

Rannsóknir hafa nú leitt í ljós að liðbönd í hné eru sködduð og að hann verði af þeim sökum frá næstu þrjá mánuðina.

McCann hafði þótt standa sig vel í upphafi tímabilsins en þetta gæti þýtt að Jóhannes Karl fái frekari tækifæri í byrjunarliðinu í hans fjarveru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×