Dagskrá bókmenntahátíðar í dag 8. september 2009 03:30 Bókmenntir Ngugi wa Thiong’o er í spjalli og upplestri í dag.
Þriðji í bókmenntahátíð er runninn upp og hefst gamanið í dag á hádegi í Norræna húsinu: tveir gestir sitja þar fyrir svörum. Fyrst spyr Gauti Kristmannsson Ngugi wa Thiong’o spjörunum úr en næsti sólarhringur er á vissan hátt helgaður þessu landflótta Keníu-skáldi. Hann les úr verkum sínum í kvöld í Iðnó og um miðjan dag á morgun, miðvikudag, er hann með fyrirlestur í Hátíðasal Háskólans. Ngugi wa Thiong’o er fæddur 1938 og hefur landflótta dvalið í Bandaríkjunum síðari ár við kennslu í Irving-háskólanum. Hann hefur jöfnum höndum skrifað leikrit, skáldsögur og verk um stöðu menningar í Afríku. Vendipunktur í lífi hans var fangelsun um eins árs skeið, en þá tók hann að skrifa á tungu feðra sinna. Verk hans eru bönnuð í Keníu og heimsókn hans þangað 2004 endaði með fyrirsát sem kostaði hann og konu hans nærri lífið. Hingaðkoma hans er einn af hápunktum hátíðarinnar og gamalli nýlenduþjóð stendur nærri hvað hann hefur að segja um Afríku og heiminn. Seinni spjallgestur í hádeginu er David Sedaris. Þá verður kl. 14 í Norræna húsinu samtal Soffíu Auðar Birgisdóttur við tvo Færeyinga, Bergtóru Hanusardóttur og Jóanes Nielsen. Í trausti þess að áheyrendum sé tamari danska en færeyska verður samtalið á dönsku. Á háskólatorgi verður kl. 16 fyrirlestur Luis López Nieves frá Púertó Ríkó í samstarfi við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur. Klukkustund síðar les David Sedaris upp í Norræna húsinu, en upplesarar kvöldsins í Iðnó eru þau Jóanes Nielsen, Auður Ava Ólafsdóttir, Gyrðir Elíasson, Kristín Ómarsdóttir og loks Ngugi wa Thiong’o.- pbb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Andlátið virðist ekki hafa borið að með saknæmum hætti Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira