Hlín: Ráðning þjóðleikhússtjóra var leikrit 2. nóvember 2009 12:27
Einn umsækjenda um stöðu þjóðleikhússtjóra gagnrýnir ráðningarferlið harðlega og segir það sýndarmennsku frá upphafi til enda. Hún segir að aldrei hafi annað staðið til en að ráða niðurskurðarmeistara í starfið og íhugar að kæra ráðningarferlið til umboðsmanns Alþingis. Tinna Gunnlaugsdóttir var skipaður þjóðleikhússtjóri áfram nú fyrir skömmu en átta aðrir umsækjendur voru um starfið. Þeir fengu rökstuðning menntamálaráðherra fyrir ráðningu Tinnu senda í pósti nú á föstudaginn. Rökstuðningurinn er á níu blaðsíðum skrifuðum af Baldri Guðlaugssyni ráðuneytisstjóra og er að mati Hlínar Agnarsdóttur, sem var í hópi umsækjenda, ein allsherjar réttlæting á óhjákvæmilegri niðurstöðu „Það sem er nú merkilegt í þessu að það hefur verið ákveðið að ráða niðurskurðarmeistara og rekstrarstjóra en ekki listrænan stjórnanda samkvæmt þessu plaggi frá ráðuneytinu. Það segir mér það að þetta hefur kannski bara verið ákvörðun sem var búin að taka fyrir löngu í ráðuneytinu og að allt umsóknarferlið, sem er nú búið að taka heila fimm mánuði, hafi bara verið sýndarmennska frá upphafi til enda og einhverskonar réttlæting á gjörðum embættismannanna í þessu samhengi," segir Hlín. Hlín gagnrýnir meðal annars að Tinna hafi verið ráðin að miklu leyti til vegna niðurskurðarhugmynda sem hún kynnti í ráðningaferlinu. Aðrir umsækjendur hafi ekki haft aðgang að gögnum og upplýsingum til að geta mótað slíkar hugmyndir. „Mér finnst við sem umsækjendur hafi verið dregin á asnaeyrunum. Við borum beðin um að koma með okkar framtíðarsýn í okkar umsóknum en aldrei neinar niðurskurðartillögur. Ég get ekki betur séð en að þetta hafi verið óþarfi, að ráðuneytið hafi ekki þurft að leggja út í alla þessu vinnu," segir Hlín. Hlín segir að jafnræðis hafi ekki verið gætt og hún íhugar að kæra ráðningarferlið allt til umboðsmanns Alþingis. „Það er greinilega búið að brjóta ákveðnar reglur í stjórnsýslulögum því við komum ekki jöfn að þessu."
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira