Fjörutíu íbúðir boðnar til sölu á nauðungaruppboðum Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 2. nóvember 2009 11:59
Um fjörutíu íbúðir einstaklinga verða boðnar til sölu á nauðungaruppboðum á næstu dögum á suðvesturhorni landsins á meðan frumvarp um framlengdan frest á nauðungarsölum liggur óafgreitt á þingi. Lög sem heimiluðu að nauðungarsölum yrði frestað til að koma í veg fyrir að fólk missti heimili sín í uppnáminu sem hér varð eftir hrun bankanna runnu úr gildi nú um helgina. Í Morgunblaðinu kom fram nýverið að nauðungarsölu á 783 fasteignum hafi verið frestað hjá sýslumannsembættunum í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi og Keflavík. Til stendur að framlengja þennan frest til 31. janúar en þar sem ekki er búið að afgreiða frumvarp dómsmálaráðherra þess efnis á Alþingi, geta nauðungarsölur nú farið fram. Fréttastofa hafði samband við sýslumannsembættin í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Keflavík og á Akranesi til að kanna hversu margar fasteignir einstaklinga gætu lent í þessu gati sem nú hefur myndast. Samtals eru nauðungaruppboð á fjörutíu og einni fasteign einstaklinga fyrirhuguð hjá þessum embættum í þessari viku og næstu. Langflest í Reykjavík, þar verða 39 íbúðir einstaklinga boðnar upp ef frumvarpið verður ekki orðið að lögum á næstu tveimur vikum. Þá verða tvær íbúðir boðnar upp í næstu viku í Kópavogi. Hjá flestum embættum sem fréttastofa leitaði upplýsinga hjá, hafa menn dagsett nauðungaruppboð í lok mánaðarins, vitandi að til stendur að framlengja frestinn - og því bíða menn átekta eftir því að frumvarpið verði að lögum.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjá meira