FME eykur áherslu á eftirlit á vettvangi 27. nóvember 2009 02:45 Hrunið Fjármálaeftirlitið leið fyrir fjárskort og mikla starfsmannaveltu í aðdraganda hrunsins, sagði Gunnar Þ. Andersen, forstjóri eftirlitsins (fyrir miðju), á ársfundi FME í Rúgbrauðsgerðinni í gær. Fréttablaðið/Stefán
Breytingar á eftirliti Fjármálaeftirlitsins (FME) á eftirliti með fjármálafyrirtækjum eru boðaðar í ársskýrslu FME fyrir árið 2008, sem gerð var opinber á ársfundi eftirlitsins í gær. Gunnar Þ. Andersen, forstjóri FME, sagði á ársfundinum að aukin áhersla verði lögð á að sannreyna upplýsingar frá fyrirtækjunum. Stofnaðir verða þverfaglegir hópar innan FME sem eiga að einbeita sér að skipulegu eftirliti á vettvangi, til að sannreyna það sem fram kemur í skýrslum frá eftirlitsskyldum aðilum. Þá verður stofnuð ný deild innan FME sem stýra mun nákvæmum rannsóknum á ársskýrslum fjármálafyrirtækja. „Það er nöturleg en sönn lýsing að hagvöxtur undanfarinna ára hafi verið fenginn að láni,“ sagði Gunnar, þegar hann fjallaði um aðdraganda bankahrunsins fyrir rúmu ári. Þegar litið er til baka má finna marga veikleika hjá íslenskum lánastofnunum fyrir hrun, sérstaklega hvað varðar áhættustýringu, stjórnarhætti og innra verklag, sagði Gunnar. Þá hafi innra jafnt sem ytra eftirliti verið ábótavant. Gunnar sagði rannsóknir FME frá hruni benda til þess að auk óeðlilegra viðskiptahátta hafi alvarleg lögbrot verið framin innan íslenskra fjármálafyrirtækja, til dæmis markaðsmisnotkun, innherjaviðskipti og mögulega innherjasvik. Þá kunni sum brotanna að varða við almenn hegningarlög. Eftirlit og eftirlitskerfi, jafnt innan fjármálastofnana sem utan, brugðust í aðdraganda hrunsins, segði Gunnar. Hjá FME hafi fjöldi starfsmanna alls ekki haldist í hendur við aukið álag og vöxt fjármálageirans, auk þess sem mikil starfsmannavelta hjá eftirlitinu hafi skaðað stofnunina og heft eftirlitsskyldu hennar. Fram kemur í ársskýrslu FME að stjórn eftirlitsins hafi nýverið samþykkt að auka gegnsæi í starfi þess, og heimila opinbera birtingu á öllum niðurstöðum embættisins, stefni það ekki hagsmunum fjármálamarkaðarins í hættu. Þessari breytingu er bæði ætlað að efla varnaðaráhrif aðgerða FME, og auka sátt um störf eftirlitsins. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Fleiri fréttir Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Sjá meira