Þvertaka fyrir málþóf Heimir Már Pétursson skrifar 27. nóvember 2009 18:58
Fullkomin óvissa ríkir um hvenær fjárlög og skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar koma á dagskrá Alþingis vegna togstreitu stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar um Icesave. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa talað um Icesave fyrir hálftómum sal í rúmlega þrjátíu klukkustundir. Þingmenn ræddu um Icesave í fjörtíu og þrjár og hálfa klukkustund á sumarþinginu og eru nú á haustþingi komnir langt með að tala jafn lengi um málið. Önnur umræða hófst um málið á fimmtudag og stóð t.d. fram til klukkan eitt síðustu nótt og stendur enn yfir. Á hádegi í dag var búið að ræða málið í 39 og hálfa klukkustund, þar af höfðu stjórnarandstöðuþingmenn talað í 33 klukkustundir oftast undir hálftómum þingsal. Illugi Gunnarsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins þvertekur fyrir að stjórnarandstaðan sé í málþófi. „Þetta mál hefur mikið breyst frá því það kom inn í þingið í haust þegar við ákváðum fyrirvarana," segir Illugi. Það sé mat stjórnarandstöðunnar að fyrirvararnir séu því miður að engu orðnir. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra leggur áherslu á að klára Icesave málið fyrir mánaðamót og miðað við þann fjölda sem enn er á mælendaskrá um Icesave verður væntanlega fundað fram á kvöld og á morgun. Þegar hlustað er á umræðurnar um Icesave finnst mönnum eins og þar sé aftur og aftur verið að segja sama hlutinn. Illugi að sumt sé þannig eðli málsins samkvæmt. „Þingmenn koma hér upp til að tjá sína skoðun og þótt menn séu saman í flokkum eru þeir líka hér inni sem einstakir þingmenn og eru kosnir á Alþingi til að segja sína skoðun," segir Illugi. Stjórnarandstaðan hefur boðið ríkisstjórninni að taka skattafrumvörpin og önnur áherslumál ríkisstjórnarinnar fyrir og afgreiða þau með skjótum hætti til nefndar og hefja svo Icesaveumræðuna á nýjan leik. Fjármálaráðherra segir ekki hægt að ganga að þessu tilboði nema einnig sé samið um hvernig ljúka eigi málum í heild sinni. „Og þar á meðal tímasett það hvenær við getum klárað Icesavemálið einhvern tíma á næstu dögum. Það er komið á dagskrá og úr nefnd. Þetta er eitt hvað þaulræddasta mál seinni tíma á þingi. Þannig að ég held að það sé ekki margt í viðbót að tala um," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Fleiri fréttir Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Sjá meira