Þór og Danni í heilsuræktina 4. desember 2009 08:30 Karl Ágúst Úlfsson og Þráinn Bertelsson skrifa handritið að fjórðu Líf-myndinni sem að öllum líkindum mun gerast innan heilsuræktarbransans. „
Það er lagt upp með að þeir séu komnir á fullt í heilsugeiranum og ætli að hasla sér völl í heilsurækt,“ segir leikarinn og bókaútgefandinn Karl Ágúst Úlfsson. Á teikniborðinu er nú loks kominn vísir að handriti fyrir næstu Líf-mynd og hefur því verið gefið vinnuheitið Heilbrigt líf. Karl mun skrifa handritið ásamt þingmanninum Þráni Bertelssyni en Gísli Örn Garðarsson verður að öllum líkindum framleiðandi myndarinnar. Karl og Eggert Þorleifsson verða síðan að sjálfsögðu í hlutverkum hinna geðþekku og seinheppnu félaga, Danna og Þórs, en ekki er enn ákveðið hver mun setjast í leikstjórastólinn. Hinar myndirnar þrjár, Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf, nutu allar mikilla vinsælda á níunda áratug síðustu aldar en þær fjölluðu um þá Þór og Danna sem áttu fremur auðvelt með að koma sér í klandur hvar sem þeir drápu niður fæti, meðal annars í fiskvinnslu í Eyjum. Fréttablaðið greindi frá því í nóvember í fyrra að fjórmenningarnir Þráinn, Karl, Eggert og Gísli hefðu hist á fundi og rætt um hugsanlega endurkomu þessa tvíeykis. Þá lá ekki fyrir söguþráður og allt virtist í fremur lausu lofti. Karl útilokar ekki að þekktu fólki úr heilsuræktarbransanum bregði fyrir í kvikmyndinni og er þar af nógu að taka: Jónína Ben., Björn Leifs í World Class, Gillzenegger og Ágústa Johnsen að ógleymdri Lindu Pé. „Fólk hefur náð miklum hæðum í þessu fagi og það er alveg vel líklegt að einhverjir þeirra komi við sögu í eigin persónu.“- fgg
Mest lesið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira