Vill setja heimsmet á friðardeginum 2. september 2009 05:15 Fallegur boðskapur Peter, sem er dansari hjá Íslenska dansflokknum, skipuleggur manngerða bylgju á degi friðarins.fréttablaðið/valli „
Mig langar að reyna að safna eins mörgum einstaklingum og ég mögulega get til að taka þátt í þessum gjörningi. Í heimsmetabók Guinness stendur að metið í öðrum eins gjörningi sé fjórtán hundrað manns og það væri gaman ef hægt væri að slá það met,“ segir Peter Andersson, dansari hjá Íslenska dansflokknum, sem skipuleggur sérstaka friðaröldu í tilefni alþjóðlegs friðardags. Að sögn Peters er hugmyndin að safna fólki saman við Sæbraut og láta manngerða öldu ganga niður eftir götunni. „Vinur minn sendi mér upplýsingar um alþjóðlega friðardaginn á netinu og mér fannst hugsunin að baki deginum vera stórkostleg. Það er haldið upp á þennan dag víðs vegar um heiminn og mig langaði að taka þátt í því að dreifa friðarboðskapnum,“ segir Peter. Nú þegar hafa um hundrað og fimmtíu manns boðað þátttöku sína í gjörningnum og að sögn Peters bætist ört í hópinn. „Því fleiri sem mæta, þeim mun betra. Ég er meira að segja tilbúinn til að koma á vinnustaði og sýna fólki hvernig á að gera ölduna,“ segir Peter brosandi. Alþjóðlegi friðardagurinn er haldinn 21. september og mun friðarbylgjan fara fram klukkan 17.30 þann dag. - sm
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Fleiri fréttir Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Sjá meira