Flugþjónn gerir stuttmynd og slær í gegn 14. september 2009 05:00 Fyrsta mynd Barða Guðmundssonar verður sýnd á Riff.Fréttablaðið/ANTON „
Ég er lærður leikari en er búinn að fljúga lengi. Mér fannst ég kominn á þann stað í lífinu að ég þyrfti að fara að skapa eitthvað,“ segir flugþjónninn Barði Guðmundsson. Stuttmynd hans, Mamma veit hvað hún syngur, verður sýnd á Riff-hátíðinni seinna í mánuðinum. „Ég skrifaði handritið á löngum flugum, oft á næturflugi til Alicante. Þá var stundum lítið að gera. Ég er yfirmaður svo ég lét það ekki trufla þótt kúnnarnir þyrftu aðstoð. Sendi bara hina,“ segir hann í gríni. Þetta er grínmynd, 24 mínútna löng. Hún fjallar um Guðna Geir (Víðir Guðmundsson) sem býr heima hjá mömmu sinni. „Helga Braga leikur mömmuna og ég hafði hana alltaf í huga þegar ég skrifaði handritið. Hún er ráðrík og eyðileggur allar tilraunir sonarins til ástarsambanda. Hún er svo hrædd um að missa hann að heiman.“ Mamma veit hvað hún syngur – Mama knows best á ensku – var frumsýnd í San Francisco í júní, á alþjóðlegri kvikmyndahátíð samkynhneigðra. „Myndin var sýnd í Castro-bíóinu í troðfullum 1.500 manna sal. Viðtökurnar voru satt að segja rosalega góðar. Eftir myndina var fyrirspurnartími og þar var aðallega spurt um Helgu Brögu, hvar ég hefði eiginlega náð í svona stórkostlega leikkonu. Ég held að Helga Braga sé hreinlega orðin heimsfræg í San Francisco.“ Tilboðum rigndi inn eftir San Francisco-hátíðina og nú er myndin bókuð á fjölda kvikmyndahátíða, meðal annars í Osló, Hamborg og Palm Springs. „Ég fylgi nú ekki sjálfkrafa með á þær allar, en kannski kíkir maður á einhverjar. Ég er nú einu sinni að vinna hjá flugfélagi,“ segir leikstjórinn og hlær. Framleiðandi myndarinnar er Hrafnhildur Gunnarsdóttir og myndin verður sýnd nokkrum sinnum á Riff, í fyrsta skipti 19. september í Háskólabíói.- drg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira