Sport

Celtic vill ræða við Martinez

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roberto Martinez, stjóri Swansea.
Roberto Martinez, stjóri Swansea. Nordic Photos / Getty Images

Celtic hefur lagt fram formlega beiðni um að fá að ræða við Roberto Martinez, knattspyrnustjóra Swansea City.

Martinez er ekki nema 35 ára gamall og hefur náð glæsilegum árangri með Swansea síðan hann lagði skóna á hilluna og tók við l iðinu árið 2007.

Á sínu fyrsta tímabili stýrði hann liðinu til sigurs í ensku C-deildinni og nú í ár varð liðið í áttunda sæti ensku B-deildarinnar.

Martinez er spænskur en hefur búið á Bretlandi síðan 1995. Hann lék lengi með Wigan og svo með Swansea frá 2003-2006 en hann var þá fyrirliði liðsins. Hann átti stóran þátt í því að liðið náði að bjarga sér frá falli úr ensku D-deildinni á hans fyrsta tímabili sem leikmaður liðsins.

Huw Jenkins, stjórnarformaður Swansea, hefur staðfest að Celtic hafi óskað þess að fá að ræða við Martinez en hann sagði í samtali við breska fjölmiðla að hann ætlaði sér fyrst að ræða við Martinez um framhaldið.

Martinez hefur verið orðaður við bæði Wigan og Reading í Englandi sem og Real Sociedad á Spáni.

Það gæti hjálpað Celtic að unnusta Martinez er skosk auk þess sem hann lék með Motherwell í skosku úrvalsdeildinni tímabilið 2001 til 2002.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×