Mikilvægt að bankar fari að reglum 25. nóvember 2009 13:50 Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG og formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Mynd/GVA
Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG og formaður efnahags- og viðskiptanefndar, segir afar mikilvægt að settar verði leikreglur um fjárhagslega endurskipulagningu bankanna. Hún hefur boðað Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, á fund nefndarinnar á morgun. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti athygli á málinu á þingfundi í dag. Hann sagði ljóst að bankarnir væru að afskrifa skuldir fyrirtækja án reglna og því væri ekkert gegnsæi í aðgerðum þeirra. „Við vitum öll að það þarf að afskrifa skuldir fyrirtækja en það er hinsvegar algjörlega ljóst að það er ekkert traust á bönkunum eins og staðan er núna. Það er gríðarlega alvarlegt," sagði þingmaðurinn. Guðlaugur sagði sig og aðra fulltrúa stjórnarandstöðunnar í efnahags- og viðskiptanefnd, kallað eftir því að tekin verði saman skýrsla um málið þar sem lagðar verðir tillögur til úrbóta. Hann spurði Lilju hvort að þetta verði gert. Lilja sagði nefndina hafa reynt að sinna eftirlitshlutverki sínu og kalla til aðila úr bankakerfinu og eftirlitsstofnunum til að ræða verklagsreglur bankanna. „Þær upplýsingar sem komið hafa fram á þessum fundum benda til þess að ekki sé verið að fara eftir samræmdum reglum og lögum. Því hef ég sem formaður viðskiptanefndar boðað hæstvirtan efnahags- og viðskiptaráðherra á fund nefndarinnar á morgun." Lilja sagðist vonast til þess að ráðherrann myndi svara því hvernig tryggt sé að verklagsreglur bankanna séu í samræmi við lög, að eftirlit með framkvæmd verklagsreglna sé virt og að jafnfræði sé gætt á milli banka og ólíkra viðskiptavina. „Viðskiptalegar skynsamlegar ákvarðanir bankanna, eins og það heitir á máli Samkeppniseftirlitsins, eru ekki alltaf í samræmi við hagsmuni almennings og því er mjög brýnt að settar verði leikreglur um fjárhagslega endurskipulagningu bankanna," sagði Lilja.
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Fleiri fréttir Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Sjá meira