Ari Eldjárn gerir gríndisk 17. desember 2009 04:00 2010 Verður árið Ari Eldjárn úr hópnum Mið-Ísland gefur út Grín skrín, geisladisk með gamanmálum sínum.
Platan Grín skrín með gamanmálum Ara Eldjárn kemur út í dag og verður til í Eymundsson. Þar eru grínatriði sem Ari hefur verið að troða upp með á þessu ári, bæði í útvarpi og á sviði. „Þarna eru nokkrir sketsar, meðal annars Bubbi á færibandi, og heilt uppistand. Þar er fjallað um Björgvin G. Sigurðsson, Búsáhaldabyltinguna, Hr. Hafnarfjörð, leðurhomma, Bubba í Idol 1980, Þursaflokkinn í Playstation og fleira,“ segir Ari. „Þetta er svo fersk plata að nýjasti sketsinn er þriggja daga gamall. Hann gengur undir nafninu Jarðarför aldarinnar og fjallar um auglýsingagerðarmann sem hefur unnið hjá FM í tuttugu ár og fær það verkefni að gera auglýsingu fyrir erfidrykkju gamals manns. Ég sendi nokkrum kunningjum mínum hann til skoðunar og svo var hann allt í einu bara kominn út um allt á netinu daginn eftir. Sjálfum Svala á FM fannst hann svo fyndinn að hann hringdi í mig og bauð mér í viðtal. Ég er bara á leiðinni.“ Ari er hluti af grínteyminu Mið-Ísland, sem er það sniðugasta sem hefur verið að gerast í grínmálum landsins lengi. Ari er líka einn af þeim sem skrifa Skaupið í ár og nú er hann búinn að gefa út disk. Hann hefur meira að segja verið í Kastljósinu með gamanefni sitt! Er hægt að toppa þetta? „Þetta er allavega eitthvað,“ segir hann, „en ég held samt að 2010 verði meira ár. Ég ætla að vera mjög virkur enda er mikið af fólki sem er í góðu stuði fyrir grín.“ Hópurinn Mið-Ísland treður upp á Batteríinu (áður sadó-masóklúbburinn Ýmir) á föstudagskvöldið og þar koma fram ásamt Ara þeir Bergur Ebbi, Dóri DNA og Jóhann Alfreð auk þess sem Þorsteinn Guðmundsson og Hugleikur Dagsson verða sérstakir gestir. Ari kynnir svo Grín skrínið í verslun Eymundsson í Kringlunni á laugardaginn kl. 16.- drg
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Kokkakonur „kjafta, skála og knúsa“ í nýjum samtökum Matur Fleiri fréttir „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ Sjá meira