Sendu dularfull póstkort í ár 16. desember 2009 05:00 Enn eitt kortið fer af stað Vera og Jara póstleggja óvænta sendingu út í heim. Mynd/María Guðrún Rúnarsdóttir
Vera Sölvadóttir og Jarþrúður Karlsdóttir fengu hugmynd á kaffihúsi í sumarbyrjun 2008: Að senda ókunnugu fólki úti um allan heim póstkort, eitt á viku. Þær stóðu við hugmyndina í heilt ár og opna á morgun sýningu á verkefninu. „Við vorum að spá í þær breytingar sem hafa orðið í upplýsingaflæði og samskiptum fólks síðasta rúma áratuginn,“ segir Vera. „Þó að flest hafi breyst eru póstkortin enn á sínum stað. Við ákváðum að finna heimilisfang hjá einhverri ókunnugri manneskju og senda henni póstkort eins og við myndum senda vini okkar. Engin kynning á okkur, ekkert heimilisfang, bara einfalt vinalegt póstkort. Takmarkið var ekki annað en að gleðja fólk, koma því á óvart og hreyfa þannig við tilveru þess með óvæntu póstkorti upp á gamla mátann.“ Vera segir að auðvelt hafi verið að grafa upp nöfn og heimilisföng hjá alls konar fólki. „Sýningin fjallar líka um að persónuupplýsingar eru aðgengilegar hvar sem er, hverjum sem er á Netinu. Heimurinn er smám saman að verða eins og lítið íslenskt sjávarþorp þar sem allir geta vitað allt um alla, ef þeir kæra sig um. Við fundum til að mynda japanskan vísindamann sem heldur úti heimasíðu þar sem fólk getur orðið sér úti um allar hans persónuupplýsingar. Við vorum með heimskort og merktum inn á hvert póstkortin fóru. Reyndum að dreifa þessu jafnt um allan heim, en helst var vandasamt að finna fólk í Afríku, eða Rússlandi og Asíu þar sem annað letur er notað.“ Þar sem sendingarnar hófust fyrir hrun segja póstkortin sögu af sálarlífi Veru og Jöru. „Við fórum frá umfjöllunum um matarboð og sumarlíf yfir í vangaveltur um þjóðfélagsástandið, efnahagskreppu og okkar nánasta umhverfi,“ segir Vera. „Við tókum svo myndir af öllum kortunum 52 og sýnum þær í réttri tímaröð. Við lestur póstkortanna fær fólk því innsýn inn í heim hversdagsfólks í miðju efnahagshruni. Í gegnum okkur sjálfar sýnum við atburðarás sem enginn gat séð fyrir.“ Sýningin hefst á morgun kl. 17, og er í Þjóðmenningarhúsinu. drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Fleiri fréttir Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Sjá meira