Páll Stefáns fær góða aðstoð 27. ágúst 2009 06:00 Alla dreymir um fótboltafrægð Knattspyrnumenn í Afríku þrá ekkert heitar en að feta í fótspor knattspyrnukappa á borð við Drogba, Essien og Eto‘o.Mynd/Páll Stefánsson
Nígeríski verðlaunahöfundurinn Chimamanda Ngozi Adichie er meðal þeirra sem skrifa sérstaklega fyrir ljósmyndabók Páls Stefánssonar, Afríka – Fótboltaálfan. Chimamanda Ngozi Adichie fékk hin virtu bókmenntaverðlaun Orange árið 2007 fyrir bók sína Hálf gul sól eða Half of a Yellow Sun sem kom út á vegum Bjarts í fyrra. Hún er einhver fremsti rithöfundur Afríku og þó víðar væri leitað og því voru það mikil gleðitíðindi fyrir Pál og útgefanda hans, Kristján Bjarka Jónasson hjá Crymogeu, þegar hún féllst á að skrifa sérstakan texta fyrir bókina. „Þetta er engin endurbirting á einhverjum fyrri skrifum hennar heldur bara orginal,“ útskýrir Kristján og bætir því við að það sé kannski svolítið skondið að ljósmyndabók Páls er afrakstur fjölda ferða til heimsálfunnar sem ljósmyndarinn hefur farið á árunum 2006 til 2009. „Afríka er bara eins og sjúkdómur, það er ekki til nein bólusetning við henni, maður þarf alltaf að fara aftur og aftur, gleðin þarna er svo ómenguð af neysluhyggjunni og fólkið er yndislegt,“ segir Páll. Hugmyndin að bókinni kviknaði þegar ljósmyndarinn fór í nokkrar ferðir til Afríku fyrir UNESCO. Heimsfrægur rithöfundur Chimanda Ngozi Adichie fékk Orange-verðlaunin fyrir bók sína Hálf gul sól árið 2007. Hún var gefin út í íslenskri þýðingu hjá Bjarti í fyrra. Hún skrifar fyrir ljósmyndabók Páls Stefánssonar, Afríka – Fótboltaálfan. „Sú mynd sem ég fékk af Afríku var allt önnur en sú sem birtist okkur í vestrænum fjölmiðlum,“ segir Páll en það sem snart hann fyrst voru þessir sérstöku litir og sú gleði sem draup nánast af hverju strái. „Eitt af því sem síðan býr til þessa gleði er fótboltinn, það eru allir í fótbolta,“ útskýrir Páll og bendir á að í knattspyrnunni kristallist von ungra drengja um að losna undan örbirgð fátæktarinnar. „Leikmenn á borð við Essien, Drogba og Eto‘o, þetta er vonin fyrir þá, þá dreymir um að verða eins og þeir, allir ætla að verða atvinnumenn í fótbolta. Og knattspyrnan er svo einstök að þessu leyti, þú getur verið með fótbolta úr sokkum og engin mörk. Enda var mikið af þeim fótboltum sem við sáum bara heimagerðir.“ Páll kveðst síður en svo hættur að fara til Afríku þótt þessi bók sé að verða tilbúin. „Ég á eftir að fara þarna aftur fyrir UNESCO og svo eru önnur verkefni í burðarliðnum. Jú, kannski maður þefi þessi Afríku-verkefni uppi, rétt eins og þau gera við mig.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira