Gamla höfnin: Fleiri vinna hjá CCP en HB Granda 19. febrúar 2009 10:13 Geimskip eru farin að skapa meiri vinnu við höfnina en fiskiskipin.
Fleiri starfsmenn starfa nú hjá tölveikjafyrirtækinu CCP sem er með höfuðstöðvar við gömlu höfnina í Reykjavík heldur en hjá hinu gamalgróna sjávarútvegsfyrirtæki HB Granda. Í nýrri skýrslu sem unnin hefur verið um atvinnustarfsemi við Gömlu höfnina kemur fram að fyrirtækjum á hafnarsvæðinu hefur í heild fjölgað verulega frá því árið 2004. Störfum í flestum atvinnugreinum hefur þannig fjölgað þar í þjónustu, verslun, veitingarekstri og fleiri atvinnugreinum en fækkað hins vegar í fiskvinnslu, útgerð og heildsölu. Sigríður Kr. Kristþórsdóttir, tók skýrsluna saman fyrir Faxaflóahafnir. Sigríður heimsótti flest fyrirtækin og lagði spurningar fyrir forsvarsmenn þeirra til að afla upplýsinga. Hún fjallar um niðurstöður vettvangskönnunar sinnar á almennum kynningarfundi vegna hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Gömlu hafnarinnar í Loftkastalnum kl 17:00 í dag, fimmtudaginn 19. febrúar.Sjávarútvegsbærinn Reykjavík Alls starfa liðlega 1.600 manns í 167 fyrirtækjum í Gömlu höfninni, þar af eru fjórir af hverjum tíu í störfum tengdum sjávarútvegi. Reykjavík er því enn mikilvægur sjávarútvegsbær og hlutur Reykjavíkurhafnar í þeirri mikilvægu atvinnugrein landsmanna hefur síst minnkað á allra síðustu árum. Þá ályktun má draga af eftirfarandi upplýsingum úr skýrslunni: Fiskveiðiárið 2007/2008 var 13,5% heildaraflamarks landsmanna úthlutað til skipa sem skráð voru í Reykjavík og hlutur Reykjavíkurhafnar í þeim efnum var stærri en allra annarra hafna. Þetta hlutfall var lægst fiskveiðiárið1997/1998 eða 8% Árið 2008 var 19% af öllum veiddum botnfiski Íslendinga landað í Reykjavík en sambærilegt hlutfall var 15% árið 2004. Árið 2007 voru um 17% botnfisks á landinu unnin í Gömlu höfninni en þetta hlutfall var um 12% árið 1994. HB Grandi ekki lengur með flesta starfsmenn á hafnarsvæðinu Í sex fyrirtækjum á hafnarsvæðinu vinna 50 manns eða fleiri. „Flestir starfsmenn eru í fyrirtækinu sem Félag viðskipta- og hagfræðinga útnefndu á dögunum þekkingarfyrirtæki ársins 2009, CCP, alls 220. Næstflestir starfsmenn eru í HB Granda, 140, og síðan koma Skeljungur og Toppfiskur (80 starfsmenn á hvorum stað), Lýsi með 65 starfsmenn og Stálsmiðjan með 50-60 starfsmenn. Það sætir vissulega tíðindum að flestir starfsmenn skuli nú vera í hátæknifyrirtæki á hafnarsvæðinu því í hliðstæðri könnun árið 2004 var HB Grandi í efsta sæti á sambærilegum lista og þar á eftir kom Skeljungur. Tekið skal fram að einungis er hér talað um þá sem sækja vinnu á hafnarsvæðinu sjálfu. Sjómenn fyrirtækja þar eru ekki taldir með og heldur ekki þeir sem vinna tímabundið eða eru í hlutastörfum í Gömlu höfninni," segir meðal annars. Bílastæðaskortur og kappakstur Fjölgun fyrirtækja, og þar með fjölgun starfsmanna, í Gömlu höfninni hefur eðlilega orðið til að bílum fjölgar þar með tilheyrandi umferðarþunga og þörf fyrir fleiri bílastæði. Í skýrslunni nefna ráðamenn fyrirtækja í Gömlu höfninni bílastæðaskort sem helsta vandamálið, einkum á Grandagarði. Sérstaka athygli vekur að viðmælendur skýrsluhöfundar við Fiskislóð nefna hins vegar hraðakstur, jafnvel ofsaakstur og kappakstur á kvöldin, sem meiri vanda en skort á bílastæðum.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira