Hlakkar til að fara á hestbak hjá pabba 20. nóvember 2009 05:00 Harpa Einarsdóttir hefur dvalið í Atlanta síðastliðið ár og starfaði þar sem hönnuður hjá CCP. fréttablaðið/stefán „
Maður hefur auðvitað saknað vina sinna og fjölskyldu hræðilega mikið og ég get ekki beðið eftir að komast á hestbak hjá pabba í sveitinni," segir hönnuðurinn Harpa Einarsdóttir. Harpa hefur verið búsett í Atlanta undanfarið ár þar sem hún starfar sem hönnuður fyrir tölvuleikjafyrirtækið CCP. Hún er á leið heim til Íslands um jólin þar sem önnur og ný verkefni bíða hennar. Harpa starfaði sem yfirhönnuður í tísku- og persónusköpun við hinn nýja tölvuleik World of Darkness sem CCP hannar og segir hún vinnuna hafa verið mjög krefjandi. „Atlanta er í Suðurríkjunum og kannski ekki skemmtilegasti staðurinn til að vera á ef maður starfar innan tískubransans. Hér er þó mikil tónlistar- og myndlistarmenning sem ég náði ekki að njóta eins mikið og ég hefði viljað sökum anna," segir Harpa og bætir við að það hafi gert henni gott að komast aðeins frá Íslandi. „Það víkkar sjóndeildarhringinn að komast svona í burtu og fyrir vikið kann maður betur að meta það sem Ísland hefur upp á að bjóða." Harpa segir eina af ástæðunum fyrir heimflutningunum vera þá að sonur hennar átti erfitt með að aðlagast breyttum aðstæðum. „Það var erfitt að vinna fulla vinnu og vera einstæð móðir án fjölskyldunetsins sem maður hafði heima. Svo var heldur ekki eins ódýrt að búa í Ameríku og maður hélt og mér þótti erfiðara að ná endum saman en heima." Harpa hefur mörg járn í eldinum og hefur í nógu að snúast við heimkomuna og hefur meðal annars verið beðin um að hanna tvær fatalínur auk þess sem hún mun sinna myndlistinni áfram. -sm
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira