Lagt til að löggæsla verði flutt frá ríkislögreglustjóra 5. nóvember 2009 06:00 löggæslan Verulegar breytingar verða á skipan lögreglumála í landinu, nái tillögur starfshóps um hagræðingu og sparnað innan hennar fram að ganga.
Lögregluembættum verður fækkað úr fimmtán í níu, embætti ríkislögreglustjóra verður stjórnsýslustofnun og yfirmönnum í lögreglu verður fækkað verulega, nái tillögur starfshóps dómsmálaráðuneytisins fram að ganga. Þær miða að því að ná fram hagræðingu og sparnaði hjá lögreglunni í landinu. Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra, sem skipaði starfshópinn, hefur kynnt ríkisstjórn greinargerð hópsins um sameiningu lögregluembætta í landinu, svo og skýrslu embættis ríkislögreglustjóra um skilgreiningu á grunnþjónustu lögreglunnar. Starfshópurinn leggur einnig til að yfirstjórn lögregluembætta verði skilin frá sýslumannsembættum. Farið verði yfir verkefni embættis ríkislögreglustjóra með það fyrir augum að embættið verði fyrst og fremst stjórnsýslustofnun með því að færa löggæsluverkefni til stækkaðra lögregluembætta. Einnig verði skoðað hvort hagkvæmt kunni að vera að fela einstökum embættum önnur verkefni lögreglunnar á landsvísu. Í nýju lögregluembættunum verði gert ráð fyrir færri yfirmönnum. Embættum ríkislögreglustjóra, lögreglustjórans á Suðurnesjum og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu verður samkvæmt tillögunum gert að ráðast í sams konar endurskoðun á fjölda yfirmanna í sínu skipulagi. Starfshópurinn staðsetur ekki hin nýju lögregluumdæmi að öðru leyti en því að þau verði á Suðurnesjum, Vesturlandi, Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi, auk höfuðborgarsvæðisins. Hópurinn telur eðlilegt að þeir sem nú starfa sem lögreglustjórar njóti forgangs til áframhaldandi stjórnunarstarfa. Starfshópurinn bendir á að nú séu liðlega þrír lögreglumenn á hvern stjórnanda í lögreglunni. Ekki sé óvarlegt að reikna með því að almennir starfsmenn geti verið um tíu á hvern stjórnanda, sem þýði umtalsverða fækkun stjórnenda. Hópurinn leggur til að nemendur Lögregluskólans fái einungis laun meðan þeir eru í starfsnámi. Að öðru leyti fjármagni þeir nám sitt með námslánum eins og aðrir nemendur. Til þessa hefur Lögregluskólinn greitt lögreglunemum laun á lokaönn í skólanum en hún er bóknámsönn. Hópurinn gerir ráð fyrir að nýtt skipulag lögregluembættanna taki gildi 1. apríl 2010. jss@frettabladid.is
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira