Innlent

Össur fordæmir kjarnorkutilraunir harðlega

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir jákvætt hversu mjög alþjóðasamfélagið hafi sameinast í sterkri fordæmingu á kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna. Íslensk stjórnvöld fordæmi hana harðlega.

„Við fordæmum hana eins sterklega og hægt er með orðum, og við munum alls staðar ljá okkar rödd þeim sem á alþjóðavettvangi tala gegn þessu. Og sömuleiðis þegar alþjóðasamfélagið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna tekur þetta fyrir að þá er alveg ljóst að við munu styðja þá niðurstöðu sem þar verður," segir hann.

Össur segir að stefna þessarar ríkisstjórnar sé að berjast gegn útbreiðslu kjarnavopna. „Við viljum leggja þau af. Og við vorum mjög ánægð til dæmis þegar nýr Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í frægri ræðu fyrir nokkrum vikum í Prag í Tékklandi að hann hyggðist nú leggja sína lóð á þá vogarskál. Það var ákveðin stefnubreyting sem við gerðum okkur vonir um að myndi skipta verulegu máli.

Það sem er jákvætt við viðbrögð alþjóðasamfélagsins núna er að það virðist hafa sameinast í sterkri fordæmingu alveg frá Rússlandi til Bandaríkjanna," segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×