Snjóflóð féll vegna vélsleðamanns á Ólafsfirði 16. mars 2009 20:16 Frá Ólafsfirði MYND ÚR SAFNI
Fimm til sex hundruð metra langt snjóflóð féll úr fjallinu fyrir ofan Ólafsfjörð í gær. Setja á upp snjóflóðavarnargarð sem verja á Dvalarheimilið Hólabrekku en flóðið fór um fimm hundruð metra sunnar en varnargarðurinn á að vera. Jón Konráðsson yfirlögregluþjónn á Ólafsfirði segir vélsleðamann hafa komið flóðin af stað en enginn var í teljanlegri hættu. „Þetta gerist með þeim hætti að gamla lagið sem er undir er svo hart og það er kominn mikill snjór þar ofan á. Síðan keyrir vélsleði upp fjallið og er að leika sér á svipuðum slóðum og þeir hafa verið að fara. Síðan þegar hann er kominn nánast upp undir brúnina þá rennur stór fleki af stað," segir Jón en flóðið fer fimm til sex hundruð metra niður fjallið og er um hundrað metra breitt að sögn Jóns. Þykktin var þó ekki nema um tveir metrar að hans sögn. Flóðið staðnæmdist um hundrað metra frá upplýstri skíðagöngubraut sem liggur í fjallinu. „Maður hefur aldrei séð nein flóð fara þarna með þessum hætti," segir Jón og telur að komandi snjóflóðavarnargarður hafi sannað tilveru sína. Hann segir elstu menn ekki muna eftir flóði sem þessu en það sem hafi gerst sé að veðráttan hafi breyst mikið síðustu árin. „Það er lítill snjór hérna framan af vetri síðan fer allt á kaf fyrir viku síðan og undirlagið er þá hart og auðvelt fyrir snjóinn að fara af stað."
Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Erlent Fleiri fréttir Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Sjá meira