Vill Læðuna á Hótel Bjarkalund 12. september 2009 03:00 síðasta embættisverkið Læðunni var stillt í partíi Stöðvar 2 á dögunum. „
Ég er búinn að bjóðast til að taka Læðuna og geyma hana. Hún er náttúrulega best geymd hér,“ segir Árni Sigurpálsson, hótelstjóri á hinu sögufræga Hótel Bjarkalundi. Embættisverki Læðunnar, Suzuki Fox-smájeppa Ólafs Ragnars úr Nætur-, Dag,- og bráðum Fangavaktinni er lokið. Læðan var í stóru hlutverki í Dagvaktinni þar sem þremenningarnir fengu vinnu á Hótel Bjarkalundi í Reykhólasveit og nú vill Árni hótelstjóri stilla bílnum upp á staðnum. „Ég get geymt hana inni yfir veturinn og svo myndi ég stilla henni upp yfir sumartímann,“ segir Árni. „Ef þau þyrftu að fá hana aftur er ég búinn að lofa að redda því.“ Árni segir að gestir á Hótel Bjarkalundi hafi enn þá mikinn áhuga á að skoða sögusvið Dagvaktarinnar. „Já, það er mikið að gera hjá okkur og það er enn þá að koma fólk og fá að skoða,“ segir hann og bætir við að svefnherbergi félaganna séu sérstaklega vinsæl. Loks er vopnið, sem Georg notaði þegar hann myrti Guggu enn þá notað til að steikja hamborgara ofan í svanga gesti hótelsins: „Já, pannan er í fullu fjöri!“ Læðan er komin aftur í hendur eiganda síns, að sögn Hörpu Þórsdóttur, framleiðanda hjá Saga Film. Ekki náðist í eigandann við vinnslu fréttarinnar. - afb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira