Kate Winslet kemur Kela í heimsfréttirnar 28. ágúst 2009 05:15 Winslet hefur aðdráttarafl Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað töluvert um aðkomu Kate Winslet að kvikmyndinni Sólskinsdrengurinn sem fjallar um hinn einhverfa Kela og baráttu fjölskyldu hans við einhverfu. „
Við réðum sérstaka PR-manneskju fyrir ferð okkar út og hún sendi út litla fréttatilkynningu um að Kate talaði inn á myndina. Hún sagðist aldrei á ævinni hafa fengið önnur eins viðbrögð," segir Margrét Dagmar Ericsdóttir, móðir Kela, sólskinsdrengsins, og framleiðandi heimildarmyndarinnar um hann, Sólskinsdrengurinn. Flestir af helstu netmiðlum heims hafa flutt fréttir af því að Óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet sé sögumaður í myndinni og tali inn á hana fyrir Margréti Dagmar. Reuters-fréttastofan reið á vaðið í fyrrakvöld og fréttavefur BBC hafði síðan eftir Margréti að nærvera Winslet yrði til þess fallin að einhverfa myndi fá enn meiri athygli en áður „Hún er í mikilvægu hlutverki hvað það varðar," hefur BBC eftir framleiðandanum Margréti. Í fréttunum af málinu er greint frá því að Winslet sé í góðum hópi listamanna enda eigi bæði Björk og Sigur Rós lög í myndinni. Margrét bætir því við að þau hafi sent eintak af myndinni á allar stærstu fréttastofurnar, þar á meðal bandarísku fréttastofuna CNN sem hafi strax sett sig í samband við Friðrik Þór Friðriksson, leikstjóra myndarinnar. Í framhaldinu er ráðgert að taka upp hálftíma viðtal við hann. Margrét reiknaði með að vera nánast eingöngu í viðtölum þegar nær drægi frumsýningu sem verður í Toronto þann 12. septem-ber. Þá hafa stórir dreifingaraðilar sett sig í samband við Margréti og á borði hennar eru nokkur tilboð um dreifingu sem verður lagst yfir á næstu dögum. - fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira