Innlent

Nokkuð um ölvun í gærkvöldi og nótt

Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og fram á nótt vegna ölvunar, bæði í heimahúsum og á víðavangi. Þó nokkrir gista fangageymslur lögreglunnar vegna þessa, en ekki kom til alvarlegra vandræða. Þá voru tveir teknir úr umferð vegna ölvunaraksturs. Fátítt er að erill vegna ölvunar sé aðfaranótt mánudags.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×