Segir viðskiptaráðherra nánast hóta fólki Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. maí 2009 20:27 Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að viðskiptaráðherra og forsætisráðherra sýni fólki algjört skilningsleysi.
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, furðar sig á orðum Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra í fréttum í dag um greiðsluaðlögun og greiðsluverkföll. Jóhanna sagði að þeir sem myndu grípa til örþrifaráða eins og greiðsluverkfalls myndu hugsanlega ekki eiga rétt á greiðsluaðlögun. Þá sagði Gylfi Magnússon að ef fólk færi í greiðsluverkfall yrði það einungis til þess að auka atvinnu innheimtulögfræðinga. „Skilyrðin sem eru sett eru svo ströng að fólk á hvort sem er ekki rétt á því að fá greiðsluaðlögun. Það eina sem fólk getur gert er að segja upp vinnunni sinni. Það hættir þá að geta greitt af lánunum sínum þangað til það er nánast orðið gjaldþrota. Og þá getur fólk kannski fengið greiðsluaðlögun hjá Héraðsdómi," segir Eygló. Hún bendir á að þetta sé ástæðan fyrir því að fólk sé að velta því fyrir sér að hætta að greiða skuldir sínar. Það sjái einfaldlega ekki fram á að hafa tök á því. Ekkert úrræði sé til fyrir fólk sem ekki sér fram á gjaldþrot. „Það er ástæðan fyrir því að við höfum verið að hafa svona miklar áhyggjur af þessu, við framsóknarmenn og fleiri, meðal annars talsmaður neytenda núna síðast. Vegna þess að fólk getur ekki borgað," segir Eygló. Eygló furðar sig líka á orðum Gylfa Magnússonar í dag. Enginn vilji hvetja fólk til þess að hætta að borga af skuldum sínum. En þegar viðskiptaráðherra nánast hóti fólki með því að tala um innheimtulögfræðinga sé hann að sýna aðstæðum fólks algjört skilningsleysi.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira