Alfreð byggir brýr 15. febrúar 2009 18:47
Fundur Alfreðs Þorsteinssonar og Davíð Oddssonar í Seðlabankanum fyrir helgi hefur vakið upp spurningar um hvort áhrifamenn í Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki ræði nú saman um endurnýjað ríkisstjórnarsamstarf eftir kosningar. Eru menn ekki alltaf í brúarsmíði, spyr Alfreð þegar hann er spurður um fundinn með Davíð. Alfreð Þorsteinsson var talinn lykilmaður bak við tjöldin við að fá þá Björn Inga Hrafnsson og Vilhjálm Vilhjálmsson til að mynda fyrsta borgarstjórnarmeirihlutann á kjörtímabilinu og einnig er talið að hann hafi átt hlut að máli þegar Óskar Bergsson ákvað að mynda núverandi meirihluta með sjálfstæðismönnum. Þegar sérlegur áhugamaður um að spyrða þessa tvo flokka í samstarf mætir í Seðlabankann og fundar þar með Davíð Oddssyni vakna því upp spurningar eins og þær hvort áhrifamenn í Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki þreifi nú á möguleika um endurnýjað ríkisstjórnarsamstarf flokkanna eftir kosningar. Fréttablaðið greindi frá fundi þeirra á föstudag en Alfreð tók þar fram að hann hefði verið að heimsækja dóttur sína í bankann en hún vinnur á sömu hæð og Davíð. Þeir Alfreð og Davíð hafa þekkst frá fornu fari en leiðir þeirra lágu meðal annars saman í borgarstjórn þegar Davíð var borgarstjóri. Í samtali við Stöð 2 vildi Alfreð ekki segja hversu langur fundur þeirra Davíðs hefði verið né hvað hefði verið rætt. Þegar hann var spurður hvort hann væru að reyna að mynda brú á milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks svaraði Alfreð með spurningu: "Eru menn ekki alltaf í brúarsmíði?"
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira