Fjöldauppsagnir ósiðlegar 6. maí 2009 15:50 Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra. Mynd/Pjetur
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, segir að það hafi kannski hljómað vel á árinu 2007 að mæta sparnaðarkröfunni á Landspítalann með fjöldauppsögnum, en slík aðgerð sé ekki í kortunum nú. „Hún er samfélagslega óábyrg og hún er hreint út sagt ósiðleg.“ Þetta kom fram í ávarpi ráðherrans á aðalfundi Landspítalans í dag. Ögmundur sagði að Íslendingar megi ekki hætta að vera stoltir af heilbrigðiskerfinu. „Þjóðin þekkir af eigin raun þá natni, þá samviskusemi og þann kærleika sem hún mætir þegar hún þarf að sækja umönnun til heilbrigðisstéttanna.“ Til frambúðar má það ekki gerast að sparnaður verði sóttur í vasa starfsfólks á heilbrigðisstofnunum, að mati Ögmundar. Ekki eigi að fjármagna heilbrigðiskerfið með því að leggja skatta á sjúklinga eða gjöld á veikindi. „Við eigum hins vegar að freista þess að bæta skipulag, nýtingu og ná fram aukinni hagkvæmni í innkaupum og öllu skipulagi. Allt þetta á að vera hægt að gera í sátt og samvinnu,“ sagði Ögmundur. Vill að farið verði af stað með byggingu nýs sjúkrahúss „Þegar kynntar voru endurskoðaðar hugmyndir um byggingu nýs Landspítala sagði forstjórinn: Við höfum ekki efni á, að gera ekki neitt,“ sagði Ögmundur og bætti við að hann væri sammála. Aftur á móti gæti hann ekki lofað neinu á þessu stigi. „Enda maðurinn í reynd nánast umboðslaus eins og sakir standa, þótt ég hafi hótað því að vera í embætti í tólf ár,“ sagði Ögmundur. Ögmundur sagði fyrirliggjandi tillögur skynsamlegar og hægt væri að færa gild rök fyrir réttmæti þess að ráðist verði í framkvæmdir í ljósi hagræðingar til langs tíma. Einnig megi finna atvinnupólitísk rök fyrir framkvæmdinni. „Verði ég áfram í embætti mun ég tryggja að málið verði fært upp á vinnuborðið en ekki sett til hliðar. Það er nefnilega hárrétt hjá Huldu Gunnlaugsdóttur, forstjóra Landspítala Háskólasjúkrahúss að það dýrt og óskynsamlegt að leggja árar í bát. Ef ég fæ um þetta ráðið, þá siglum við,“ sagði ráðherrann.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira