Auður ríkra rýrnað um þúsund milljarði Sigríður Mogensen. skrifar 6. maí 2009 18:46
Auður tuttugu og fimm ríkustu Íslendinganna árið 2007 hefur rýrnað um eitt þúsund og tvö hundruð milljarða króna en hrein eign flestra þeirra er engin í dag. Tapið slagar upp í landsframleiðslu ársins 2007. Þegar Sirkus, fylgirit Fréttablaðsins, birti lista yfir 25 ríkustu Íslendingana í lok maí 2007 má segja að góðærið hafi verið í hápunkti. Helstu viðskiptamenn landsins voru það ríkir að enginn sem átti undir 20 milljarða í eignir skuldlaust komst inn á listann. Björgólfsfeðgar skipuðu tvö efstu sætin á listanum en meðal annarra í efstu sætum voru Jón Ásgeir Jóhannesson, Lýður og Ágúst Guðmundssynir og Ólafur Ólafsson. Íslenskt viðskiptalíf tók hins vegar stakkaskiptum eftir bankahrunið og hefur hvert eignarhaldsfélagið á fætur öðru komist í þrot á síðustu vikum og mánuðum með tilheyrandi afleiðingum fyrir eigendur þeirra. Tuttugu og fimm ríkustu Íslendingarnir árið 2007 áttu hreinar eignir upp á samtals eitt þúsund, þrjú hundruð og níutíu milljarða króna, en samkvæmt mati fréttastofu eru um tólf hundruð milljarðar af þeirri upphæð nú horfnir. Til að setja þessa gríðarháu tölu í samhengi má nefna að landsframleiðsla ársins 2007 var tólf hundruð níutíu og þrír milljarðar króna. Þá gera áætlanir ráð fyrir því að fjárlagagatið verði 180 milljarðar króna á þessu ári. Hægt væri að brúa fjárlagagatið á þessu ári sjö sinnum fyrir tólf hundruð milljarða króna. Margir af áður ríkustu mönnum Íslands skilja eftir sig skuldaslóð, en þessir aðilar eru í flestum tilfellum í mjög takmarkaðri persónulegri ábyrgð fyrir skuldbindingum sínum - ef einhverri. Ítarlega verður fjallað um eignatap auðmanna í Íslandi í dag, eftir fréttir á morgun.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira