Lonely Planet setur Ísland í toppsætið 4. nóvember 2009 06:00 Ferðamenn í Reykjavík Vegna kreppunnar og falls krónunnar er ekki lengur dýrt að vera ferðamaður á Íslandi.
Lonely Planet, umsvifamesti útgefandi ferðabóka í heiminum, setur Ísland í efsta sæti á lista yfir þá staði sem hagkvæmast er að ferðast til á næsta ári. Þetta kemur fram í nýjustu ferðabók útgefandans, Best in Travel 2010. „Hefur þig alltaf langað að heimsækja þetta töfrandi og dularfulla land? Skoða jökla og eldfjöll og busla í heitum hverum? Hefurðu hætt við að fara vegna þess hversu dýrt það er að vera á Íslandi? Jæja, árið 2010 er rétti tíminn til að fara,“ segir í ferðabókinni. Efnahagskreppan hefur gert það að verkum að ekki er lengur dýrt að vera ferðamaður á Íslandi og því er landið í toppsætinu yfir þá staði sem Lonely Planet telur hagkvæmast að ferðast til. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að það hafi mikla þýðingu fyrir ferðaþjónustuna að Lonely Planet skuli telja Ísland vænlegan kost fyrir ferðalanga. „Okkur veitir ekki af svona góðri landkynningu,“ segir Erna. „Þetta er náttúrulega gríðarlega stór útgefandi og milljónir manna lesa þessar bækur þannig að það er alveg eins líklegt að þarna séu að opnast nýir markaðir fyrir íslenska ferðaþjónustu.“ Erna segir að útlit sé fyrir að fjöldi ferðamanna í ár verði svipaður og á síðasta ári, um 500 þúsund. Hún segir að þó að ferðamönnum sem hingað komi vegna ráðstefnuhalda hafi fækkað, og einnig hafi færri breskir ferðamenn komið, hafi ferðum frá Mið-Evrópulöndunum fjölgað töluvert. Erna segist nokkuð bjartsýn fyrir næsta ár. Þó verði sífellt erfiðara að meta fjölda ferðamanna fram í tímann þar sem fólk bóki með miklu styttri fyrirvara nú en áður.trausti@frettabladid.is
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira