Fallnar stjörnur 21. desember 2009 06:15 Michael Jackson Poppgoðið Michael Jackson lést þann 25. júní. Hann hné niður á heimili sínu í Los Angeles eftir að hafa fengið hjartaáfall. Hann var úrskurðaður látinn við komuna á spítalann. Dauði Jacksons þótti dularfullur og er talið að ofnotknun verkjalyfja hafi verið orsök hjartáfallsins. Einkalæknir Jacksons hefur verið yfirheyrður grunaður um að hafa gefið honum banvænan skammt af lyfjum. Jackson skilur eftir sig þrjú börn sem nú eru í forsjá móður hans og systur.
Fjöldi þekktra einstaklinga féll frá árið 2009 og var poppgoðið Michael Jackson þar á meðal. Andláti frægra stjarna fylgir ávalt mikil eftirsjá, en víst er að minning þeirra mun lifa áfram um ókomna tíð. Natasha Richardson Leikkonan Natasha Richardson lést eftir höfuðhögg þann 18. mars. Richardson hafði verið í skíðakennslu í Kanada þegar hún datt og hlaut höfuðhögg, leikkonan neitaði þó að gangast undir læknisskoðun og fór þess í stað heim að hvíla sig. Nokkrum tímum seinna var hún flutt á sjúkrahús vegna höfuðverks en lést á leiðinni. Richardson var gift leikaranum Liam Neeson og áttu þau saman tvo drengi.Jade goody Breska raunveruleikastjarnan Jade Goody lést þann 22. mars eftir stutta baráttu við krabbamein, hún var þá aðeins 27 ára gömul. Goody varð þekkt í heimalandi sínu eftir að hafa tekið þátt í raunveruleikaþættinum Big Brother árið 2002. Goody giftist kærasta sínum Jack Tweed stuttu fyrir andlát sitt. Hún skilur eftir sig tvo unga syni frá fyrra sambandi.Dom deluise Gamanleikarinn Dom DeLuise lést þann 4. maí eftir að nýrun hættu skyndilega að starfa. DeLuise hafði lengi þjáðst af sykursýki og of háum blóðþrýsting vegna offitu og má rekja nýrnasjúkdóminn til þessa.David carradine Leikarinn David Carradine fannt látinn á hótelherbergi í Bangkok í Taílandi þann 4. júní í sumar. Lögreglan kom að leikaranum þar sem hann hékk inn í fataskáp, aðkoman þótti hin undarlegasta og vildi lögreglan ekki útiloka þann möguleika að einhver hafi myrt leikarann. Að lokum úrskurðaði dómari að Carrager hafði fallið fyrir eigin hendi. Carrager var einna þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndinni Kill Bill.Farrah Fawcett Leikkonan Farrah Fawcett lést þann 25. júní eftir áralanga baráttu við krabbamein. Fawcett hafði glímt við krabbamein frá árinu 2006 og hafði hún skrásett alla sjúkrasögu sína frá árinu 2007. Krabbameinið breyddist þó út og Fawcett lést á gjörgæslu Saint John’s spítalans í Santa Monicu. Fawcett var einna þekktust fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Charlie‘s Angels.Patrick swayze Leikarinn og dansarinn Patrick Swayze lést 14. september eftir erfiða baráttu við krabbamein. Swayze var ávalt mjög opinskár með sjúkdóm sinn og lét meðal annars hafa eftir sér við eitt tækifæri; „Ég er aðeins einn af mörgum einstaklingum sem þarf að berjast við þennan sjúkdóm.“ Eftirminnilegustu hlutverk Swayze voru í kvikmyndunum Dirty Dancing og Ghost.Adam Goldstein Plötusnúðurinn Dj AM, eða Adam Goldstein eins og hann hét réttu nafni, lést þann 28. ágúst af ofneyslu eiturlyfja. Goldstein hóf að þeyta skífum aðeins 20 ára gamall eftir að hafa séð plötusnúðinn Herbie Hancock spila við Grammy hátíðina það árið. Þann 19. september árið 2008 lenti Goldstein í flugslysi og komst einn lífs af ásamt vini sínum, tónlistarmanninum Travis Barker. Goldstein brenndist illa og lá lengi á sjúkrahúsi en náði sér loks á strik.Stephen Gately Írski söngvarinn Steven Gately lést í íbúð sinni á sólareyjunni Majorca og er talið að hann hafi drukknað í eigin ælu. Söngvarinn hafði verið úti að skemmta sér um kvöldið ásamt sambýlismanni sínum og vini sem fóru að sofa þegar heim kom en Gately varð eftir einn í stofunni. Gately varð frægur sem meðlimur írsku drengjasveitarinnar Boyzone árið 1993 og vakti það gríðarlega athygli þegar hann kom opinberlega út úr skápnum á sínum tíma.
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fleiri fréttir Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Sjá meira