Álfheiður Ingadóttir: Vítavert ekki viðeigandi orð í þessu samhengi Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 22. ágúst 2009 14:32 Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis og þingmaður Vinstri grænna. Mynd/GVA „
Það hafa allir forsetar sitt mat á þessu, það er engin ein regla sem gildir þar," segir Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis um athugasemd sína við orðaval þingmanns í gær. Hún hvatti Tryggva Þór Herbertsson, þingmann Sjálfstæðisflokks, til að gæta hófs í orðavali eftir að hann tók sér orðið vítavert í munn. „Það er meginhlutverk forseta að halda góðri reglu í þingsal og til þess er leikurinn gerður að hafa fundarstjórn," segir Álfheiður og segir alsiða að forsetar beini ábendingum um orðaval til þingmanna. „Það var auðvitað mitt mat að þetta væri ekki viðeigandi orð í því samhengi sem það var sagt. Ég bað þingmanninn um að gæta hófs og gerði það í tvígang. Hann lét sér ekki segjast og það sýnir kannski muninn á smekk manna." Hún bendir hins vegar á að orðin víti, ávítur og vítavert hafi sérstaka merkingu gagnvart forseta þingsins. „Það er mjög mikill munur á því hvort forseti noti það eða einhver annar. Samkvæmt þingsköpum getur forseti sagt að eitthvað sé vítavert ef hann telur að það þurfi að víta þingmann, en það er mjög sjaldgæft. Það á ekkert skylt við það hvernig aðrir horfa á notkun þess orðs, en samkvæmt þingsköpum eru ávítur forseta mjög alvarlegar," segir Álfheiður. Hún segir langt því frá að hún hafi ávítað eða vítt þingmanninn, heldur hvatt hann í fullri vinsemd til að gæta hófs í orðavali. Hún gerir því athugasemd við fyrirsögn Vísis, „Vítavert" vítavert í sölum alþingis, því samkvæmt þingsköpum sé sú sannanlega ekki raunin.
Tengdar fréttir „Vítavert" vítavert í sölum Alþingis Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis, hvatti Tryggva Þór Herbertsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, tvisvar til að gæta hófs í orðavali fyrir að nota orðið vítavert í máli sínu í þingsal í gærkvöld. 22. ágúst 2009 11:28 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira
„Vítavert" vítavert í sölum Alþingis Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis, hvatti Tryggva Þór Herbertsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, tvisvar til að gæta hófs í orðavali fyrir að nota orðið vítavert í máli sínu í þingsal í gærkvöld. 22. ágúst 2009 11:28