Lög handa mömmu og pabba 3. desember 2009 06:00 Fjórða sólóplata Fabúlu kemur út á föstudaginn. Hún nefnist In Your Skin.
Fjórða sólóplata Fabúlu, Margrétar Kristínar Sigurðardóttur, kemur út á föstudaginn. Platan heitir In Your Skin og inniheldur tólf lög sem eru flest sungin á ensku. Tvö lög eru sungin á íslensku og eru þau bæði tileinkuð foreldrum hennar. „Þau áttu gullbrúðkaupsafmæli í fyrra. Ég bjó til lög við ljóð sem ég hafði samið til þeirra áður,“ segir Margrét. Hún hóf vinnu við plötuna síðasta vetur og segir hana poppaðari en þá síðustu sem hún gaf út, hina lágstemmdu og draumkenndu Dusk. Á In Your Skin má finna naktar og fíngerðar framsetningar í bland við stórar hljóðmyndir og kraftmikla kafla. Stíll Fabúlu einkennist af tregablandinni leikgleði og óvæntum uppákomum eins og kemur berlega í ljós á plötunni. Hún ætlar að fylgja gripnum eftir með útgáfutónleikum í Þjóðmenningarhúsinu á föstudaginn. Einnig fer hún í tónleikaferð um landið eftir áramót. „Ég hef ekki áður farið hringinn með tónlistina mína. Ég hef bara skotist stutta túra og á fáa staði þannig að ég á það eftir. Ég hlakka til að gera það,“ segir Margrét. Einnig hyggur hún á spilamennsku á Norðurlöndunum með vorinu og verður það í fyrsta sinn sem hún fer þangað í tónleikaferð. Hægt verður að fylgjast með Fabúlu á nýrri vefsíðu, Fabula.is, sem verður opnuð á föstudaginn. - fb
Mest lesið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Lífið „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Fleiri fréttir Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Sjá meira