Barnið svipt vernd með nafngreiningu 16. febrúar 2009 13:24 Faðir tæplega fjögurra ára stúlku hefur verið nafngreindur víðsvegar um netið. Sérfræðingar telja það skaða fórnalambið. „
Með því að birta nafn geranda, til dæmis þegar hann er faðir þolanda, er búið að svipta barnið mikilvægri vernd sem nafnleyndinni er ætlað að veita" segir Svala Ísfeld Ólafsdóttir, kennari í refsirétti og afbrotafræði við HR, um nafnbirtingar á föður tæplega fjögurra ára gamallar stúlku sem finna má á bloggsíðum og Facebook. Bloggari, sem heldur úti vefsíðu undir véböndum mbl.is, nafngreindi föður stúlkunnar. Að auki hefur hópur manna tekið sig saman á Facebook og birt nafn mannsins þar sem gjörðir hans eru fordæmdar. Maðurinn, sem er 25 ára gamall, var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness snemma í síðustu viku fyrir að misnota dóttur sína. Vernda fórnalamb, ekki geranda Svala bendir á að nafnleynd gerandans við aðstæður sem þessar sé til þess að vernda fórnalambið, ekki þann sem var dæmdur. Hún segir það til þess gert að þolandinn þurfi ekki að bera þann kross ævilangt að viðkvæm persónuleg málefni sem það varðar komist með þessum hætti í hámæli. Viðkvæmar persónuupplýsingar „Hafa má í huga að í dómum er einnig finna mjög viðkvæmar persónulegar upplýsingar um þolandann. Lýsingar á brotunum eru hispurslausar og ganga mjög nálægt þolendum," segir Svala og bætir við að þar megi oft finna upplýsingar um heilsufar, hugsanir, andlega líðan og tilfinningar fórnalambsins og svo og hegðun þess. Eðlilegt er við þessar aðstæður að virða rétt þolandans til nafnleyndar. Með því að birta nafn nákomins geranda, eins og föður í þessu tilviki, er því miður búið að svipta barnið þessari friðhelgi og vernd. Það er afar mikilvægt að þeir sem standa fyrir þessum nafnbirtingum átti sig á þeim óleik sem þeir kunna að gera barninu með því að afhjúpa þessar upplýsingar. Sterk réttlætiskennd þeirra má ekki verða til að skaða barnið meira en orðið er. Ekki endilega hættulegur Svala veltir því jafnframt fyrir sér hvaða hagsmuni sé verið að vernda með nafnbirtingu föðurins. Þeir hljóti að vera þeir að aðrir geti varað sig á manninum og þannig forðað öðrum börnum frá að verða fórnarlömb hans. Í þessu tiltekna máli verði þó að hafa í huga að brot hafi verið framið í nánum tengslum innan fjölskyldu og í skjóli veggja heimilisins. Ekki verði endilega af því dregin ályktun um að maðurinn sé almennt hættulegur börnum eða líklegur til að leita eftir kynferðislegu samneyti við önnur börn sem kunna að verða á vegi hans. Myndbirtinga hjálpa ekki börnum Forsvarsmaður Blátt áfram, Sigríður Björnsdóttir segir tilgangnum ekki náð með því að mynd- og nafnbirta gerendur kynferðisbrota. Hún segir börn ekki skilja eða þekkja andlit manna sem þeim eru sýnd og eru barnaníðingar. Betra sé að fræða barnið um líkama sinn og mörk. Ekki þegja „Maður má segja nafnið og þegar maður er tilbúinn til þess," segir Sigríður sem er sammála því að það eigi ekki að halda neinum hlífiskildi yfir gerendum kynferðisbrota. Hún segir að það ætti hinsvegar að vera ákvörðun þolandans þegar hann er tilbúinn til þess. Að segja nafnið léttir um leið byrði sektarkenndar af baki þolandans að sögn Sigríðar og því mikilvægt a nafnið komi fram fyrr en síðar. Virða rétt barna „En það verður að virða rétt barnsins," segir Sigríður varðandi nafnabirtingar á börnum sem hafa þurft að þola kynferðisbrot af einstaklingi þeim tengdum.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Fleiri fréttir Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Sjá meira