Innlent

Hitinn í 20 stig á Þingvöllum

Nauthólsvík var þéttsetin í góða veðrinu í gær. Þessir drengir æfðu stökk fyrir lengra komna á sandinum. 
Fréttablaðið/Valli
Nauthólsvík var þéttsetin í góða veðrinu í gær. Þessir drengir æfðu stökk fyrir lengra komna á sandinum. Fréttablaðið/Valli

Landsmenn nutu margir einmuna veðurblíðu í gær, og fór hitinn í nítján stig í höfuðborginni. Fjölmargir notuðu tækifærið og stunduðu útivist af ýmsu tagi, fóru í sund, hjólatúra og gönguferðir í góða veðrinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var veðrið gott víðast hvar í gær, og fór hitinn mest í tuttugu stig á Þingvöllum. Heldur var þó kalt í þokulofti víða á Austurlandi. Spáð er áframhaldandi veðurblíðu víða um land. Höfuð­borgarbúar geta því hlakkað til sólríkrar og þurrar viku, en reikna má með rigningu um næstu helgi.

- bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×