Ímynd Tiger að hruni komin 9. desember 2009 06:30 Lögreglan í Flórída útilokar ekki að Woods hafi verið undir áhrifum svefnlyfs þegar hann ók á brunahana.
Fyrir hálfum mánuði var Tiger Woods dýrlingur, nánast ósnertanlegur. Í dag er annað uppi á teninginum og ímynd besta kylfings heims er löskuð. Samkvæmt vefsíðu Daily News er Elin Nordegren, eiginkona Woods, flutt út af heimili þeirra hjóna ásamt börnum þeirra. Nordegren, sem er sænsk, á að auki að hafa fest kaup á fallegu húsi rétt fyrir utan Stokkhólm. Húsið keypti hún ásamt tvíburasystur sinni. Fjölmiðlar greindu síðan frá því í gær að kona á miðjum aldri hefði verið flutt með sjúkrabíl frá húsi Woods í Flórída en móðir Elínar, Barbro Holmberg, hefur dvalist á heimili þeirra hjóna. Fréttastofan NBC staðfesti stuttu síðar að konan væri vissulega móðir Elinar og væri hún á batavegi. Nýjar heimildir herma að gömul hnémeiðsl Tiger Woods séu orsök þess að kylfingurinn varð háður verkjalyfjum. Ein hjákona Woods opinberaði í viðtali að íþróttamaðurinn hefði verið háður lyfinu Ambien og vilja sumir meina að Woods hafi verið undir áhrifum þess þegar hann ók bíl sínum á brunahana. Samkvæmt skýrslu frá lögreglunni í Flórída á Woods að hafa verið sofandi þegar lögreglumenn komu á vettvang stuttu eftir áreksturinn. „Þegar ég kom á slysstað lá hann hrjótandi,“ var haft eftir nágranna Woods, Jarius Adams, en hann hringdi eftir aðstoð. Annar lögregluþjónninn sagði kylfinginn hafa hagað sér undarlega á slysstað. Ekki er talið útilokað að hann hafi verið undir áhrifum Ambien, sem er algengt svefnlyf í Bandaríkjunum.
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira