Ráðherrar fengu kaldar kveðjur á frumsýningu 21. desember 2009 07:00 Ragnar ásamt þeim Charlotte Böving, Jóni Gnarr og Benedikt Erlingssyni. Ragnar sendi ráðamönnum þjóðarinnar kaldar kveðjur á frumsýningu þjóðarinnar og sagði þá vera að slátra kvikmyndagerð á altari niðurskurðar. Fréttablaðið/Daníel
Ragnar Bragason, leikstjóri kvikmyndarinnar Bjarnfreðarson, sendi ráðamönnum þjóðarinnar kaldar kveðjur þegar hann flutti stutta tölu á undan frumsýningu myndarinnar í Háskólabíói. Fyrirhugaður niðurskurður ríkistjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna á Kvikmyndamiðstöð og þar af leiðandi kvikmyndasjóði Kvikmyndamiðstöðvar Íslands hefur mætt harðri andspyrnu kvikmyndagerðarmanna sem telja að með honum verði atvinnugreininni hreinlega slátrað. Menningamálaráðherrann Katrín Jakobsdóttir hefur lýst því yfir að hún muni reyna að fá þessum niðurskurði breytt. Ragnar, sem hingað til hefur verið þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum, dró ekkert undan í ræðunni þótt í salnum hefðu setið forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherrann Steingrímur J. Sigfússon og utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson. Katrín Jakobsdóttir, menninga-og menntamálaráðherra, var hins vegar ekki meðal gesta og Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, forfallaðist á síðustu stundu. Ragnar gaf Fréttablaðinu góðfúslegt leyfi sitt til að birta brot úr ræðunni sem þótti ansi mögnuð að mati viðstaddra: „Leiknar kvikmyndir og sjónvarpsefni eru þjóðleikhús þjóðarinnar allrar, nær til fólks í Reykjavík, Selfossi og á Súðavík. Að meðaltali nýtur hálf þjóðin hvers leikins sjónvarpsþáttar kvikmyndar sem framleidd er. En fyrir mig og marga hérna inni fellur skuggi á þennan dag vegna þeirra fyrirhuguðu hörmunga sem yfirvofandi eru. Í uppsiglingu er íslenskur kvikmyndavetur. Stjórnvöld hafa ákveðið að ráðast sérstaklega á kvikmyndagerð í landinu og slátra henni á altari niðurskurðar meðan aðrar listgreinar fá að vera að stærstu leiti óáreyttar,“ sagði Ragnar í ræðu sinni og vísaði meðal annars til Írlands þar sem kvikmyndagerð hefði fengið að standa nánast óáreitt þrátt fyrir djúpa efnahagskreppu. Ragnar kvaddi með þeim orðum að niðurskurðurinn væri óskiljanlegur gjörningur sem væri byggður á vanþekkingu. „Hvernig er hægt að komast að því að skera niður í grein sem margfaldar hverja krónu sem ríkið leggur í hana? Ég ætla að vona að þið njótið þessar sýningar í kvöld, á þessari kvikmynd sem við sem gerðum erum afskaplega stolt af. Hún gæti orðið eitt síðasta blómið í dalnum í langan tíma.“-freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Sjá meira