Fyrsta loðnan til Norðfjarðar 15. febrúar 2009 11:57 Úr myndasafni.
Börkur NK er væntanlegur til Neskaupstaðar nú klukkan tvö með þúsund tonna loðnufarm, en þetta er fyrsta loðnan sem þangað berst á þessari vertíð. Loðnan var veidd út á takmarkaðan rannsóknakvóta en skipstjórar í Eyjum krefjast þess í kjarnyrtri ályktun að stjórnvöld heimili nú þegar almennar loðnuveiðar.Börkur fékk loðnuna vestur af Vestmannaeyjum í fjórum köstum, að sögn Herberts Jónssonar stýrimanns. Þrjú önnur skip fengu einnig loðnu í gær út af suðurströndinni; Guðmundur, Aðalsteinn Jónsson og Hákon, en áhafnir þeirra eru nú að frysta loðnuna um borð. Hrognafylling er 19 til 20 prósent sem þýðir að loðnan er á síðustu metrunum fyrir svokallaða Japansfrystingu.Róbert Hafliðason, stýrimaður á Guðmundi, segir að þeir hafi fengið loðnuna út af Þjórsárósum í gær en segir að gangan sé nú út af Þorlákshöfn. Tvö skip eru að þreifa fyrir sér þar, Ásgrímur Halldórsson og Kap, en bræla í morgun hefur komið í veg fyrir að þau hafi kastað.Öll skipin hafa fengið takmarkaðan rannsóknarkvóta, sem dugar í einn til tvo farma, en miðað við ályktun Skipstjóra og- stýrimannafélagsins Verðanda í Vestmannaeyjum í gær eru sjómenn orðnir óþolinmóðir að fá ekki að hefja alvöru veiðar. Þar er skorað á ríkisstjórnina að láta hefja loðnuveiðar strax."Íslenskt þjóðfélag er á hausnum í orðsins fyllstu merkingu og það eina sem Ríkisstjórn Íslands hefur hugann við er allt annað en sjávarútvegur," segja Eyjamenn og bæta við:"Fullmönnuð ríkisstjórn af fólki sem hefur ekki hundsvit á sjávarútvegi er hneisa fyrir Ísland. Það eru mörg hundruð milljónir að tapast á hverjum degi meðan þið sem stjórnið landinu okkar vitið ekki að sjávarútvegurinn er það eina sem getur bjargað þessari þjóð frá gjaldþroti. Álver eða tónlistahús gera það ekki."Og spurt er í ályktuninni:"Hvernig ætlið þið í ríkisstjórninni að bjarga heimilum landsins ef ekki á að nota þetta tækifæri sem fellst í veiðum á loðnu ? Tíminn er stuttur sem þið hafið og þá erum við að tala um daga eða jafnvel klukkutímaspursmál. Stjórn Verðanda hvetur ríkisstjórnina til að láta af mannaveiðum og láta hefja loðnuveiðar ekki seinna en á morgun," segir í ályktuninni frá því í gær.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Sjá meira