Sérstakur saksóknari rannsaki gengisfallið 10. janúar 2009 06:00 „
Ég tel ástæðu til þess að rannsóknarnefndin athugi gjaldmiðlasamningana sérstaklega. Hún á að gera það,“ segir Eiríkur Tómasson hjá Þorbirni í Grindavík og varaformaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, og vísar til sérstakrar þriggja manna rannsóknarnefndar. Hann segir marga telja að eigendur bankanna hafi látið selja útflutningsfyrirtækjum og lífeyrissjóðum samninga sem gerðu ráð fyrir að gengi krónunnar styrkist. Það þýðir að gerður er samningur um gjaldeyri, þannig að hann er seldur á tilteknum degi með loforði um að hann verði keyptur aftur á tilteknu gengi síðar. Geri menn ráð fyrir að krónan styrkist, er rætt um að taka stöðu með krónunni. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, gengur lengra og segir að í tilviki bankanna sjálfra „sé það verkefni fyrir hinn sérstaka saksóknara að kanna hvort bankarnir hafi verið að veikja krónuna á sama tíma og þeir seldu okkur það sem við töldum vera varnir.“ Kjalar og Exista, sem voru stærstu eigendur Kaupþings, hefðu gert hið gagnstæða. „Er hægt að kalla þessi vinnubrögð „svikamyllu“?“ spurði Eiríkur og hélt áfram: „Ég veit það ekki, en hvernig er þetta hjá öðrum fyrrum eigendum bankanna, eru einu eignir þeirra stöður gegn krónunni og eru það stöður gegn þjóðinni?“ spyr Eiríkur. Helstu eigendur bankanna áttu hins vegar einnig hluti í sjávarútvegsfyrirtækjum. Til dæmis á Kjalar HB Granda. Kjalar og Exista munu samanlagt hafa tekið um tólf hundruð milljóna evra stöðu gegn krónunni í fyrra. Gengi krónunnar féll verulega allt árið í fyrra fyrir hrunið. Verðbólga jókst og erlendar skuldir heimila og fyrirtækja hækkuðu mikið. Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði um gengisfallið í lok mars að óprúttnir aðilar hefðu gert atlögu að íslensku fjármálakerfi og Fjármálaeftirlitið hóf rannsókn, sem lítið hefur frést af. Sigurður Einarsson, þáverandi stjórnarformaður Kaupþings, nafngreindi síðar fjóra vogunarsjóði sem hefðu átt þátt í gengisfallinu. -ikh
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Sjá meira