Framkvæmt á vatnsverndarsvæði 6. nóvember 2009 04:30 útsýnið úr heiðmörk Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur telur að fyrirhugaðar framkvæmdir við Suðvesturlínu geti haft áhrif á vatnsból þrátt fyrir öryggiskröfur og mótvægisaðgerðir.
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur, heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis og Skipulagsstofnun telja allar að vatnsvernd verði ógnað með lagningu Suðvesturlínu. Í umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs borgarinnar frá því í júní segir að fyrirhuguð framkvæmd geti haft áhrif á vatnsból þrátt fyrir öryggiskröfur og mótvægisaðgerðir. Framkvæmd vatnsverndar geti farið í uppnám, einkum inni á grann- og brunnsvæði í námunda við og með aðrennsli að vatnsbólum. Framkvæmdir og rask skapi „óhjákvæmilega hættu fyrir öryggi vatnsöflunar“. Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis er mjög afdráttarlaus í sinni bókun. Þar segir: „Framkvæmdir og rask sem fylgja uppbyggingu og síðar þjónusta við þessar háspennulínur svo nærri vatnsbólunum skapar óhjákvæmilega hættur fyrir öryggi vatnsöflunar.“ Nefndin telur línuna hins vegar svo mikilvæga að þessir hagsmunir víki. Betra hefði verið að fara aðra leið en að teknu tilliti til „mikilvægi boðaðra framkvæmda“ og að viss öryggissjónarmið verði tryggð, leggst nefndin ekki gegn framkvæmdinni. Skipulagsstofnun tók undir áhyggjurnar í umhverfismati sínu. Tekið var tillit til ýmissa athugasemda. Ekki verður framkvæmt frá byrjun nóvember og til loka mars og hafa þarf samband við heilbrigðiseftirlit um alla þætti framkvæmdarinnar. Umhverfismatið var því jákvætt. Landsnet stendur fyrir framkvæmdinni og fyrirtækinu verður gert að bera ábyrgð á öllum þáttum hennar inni á vatnsverndarsvæðum. Það verður því ekki hægt að vísa í ábyrgð undirverktaka fari eitthvað úrskeiðis. Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, segir að fyllsta öryggis verði gætt og unnið verði eftir fremstu gæðastuðlum. Sérstaklega verði tryggt að möstrin mengi ekki. Guðlaugur G. Sverrisson, forstjóri Orkuveitunnar, segir fyrirtækið vera með viðbragðsáætlanir mengist vatnsból. Komi versta mögulega staða upp á framkvæmdasvæðinu í Heiðmörk verði vatn sótt í Hengil og að Nesjavöllum.kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps Erlent Fleiri fréttir Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Sjá meira