Bjóða fram aðstoð í Icesave deilu 18. febrúar 2009 19:14 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Magnús Árni Skúlason eru meðlimir hópsins.
InDefence hópurinn fagnar umræðum á Alþingi Íslendinga um þá ákvörðun bresku ríkisstjórnarinnar um að beita hryðjuverkalögum gegn Íslendingum þann 8. október 2008. Þessi afdrifaríka aðför að íslensku samfélagi kom okkur gersamlega í opna skjöldu og breytti erfiðri stöðu í efnahagslegt hrun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópnum. Þar segir ennfremur að það séu réttar áherslur íslenskra stjórnvalda að semja á nýjum forsendum um skuldbindingar Íslendinga vegna Icesave, enda ljóst að með beitingu hryðjuverkalaga gegn íslenskum stjórnvöldum sem og Landsbanka Íslands, þá rýrðu bresk stjórnvöld eignir íslenskra aðila erlendis sem og sköðuðu viðskiptahagsmuni óskyldra íslenskra fyrirtækja. Ljóst sé að orðstír allra Íslendinga hafi verið dreginn í efa með því að setja okkur á lista með ógnarstjórnum eins og Norður-Kóreu, Al Kaida og Talibönum svo einhverjir séu nefndir. „Síðan um miðjan október 2008 hefur InDefence hópurinn unnið að því að vekja athygli erlendra stjórnvalda, innstæðueigenda og fjölmiðla á notkun breskra stjórnvalda á hryðjuverkalögum gegn íslenskum hagsmunum. InDefence hópurinn hefur líklega tekið á móti um fimmta tug fjölmiðla alls staðar að úr heiminum. Hópurinn hefur saknað upplýstrar umræðu um beitingu hryðjuverkalaganna á Alþingi og hefur undrast aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda þegar kemur að því að verja hagsmuni þjóðarinnar í þessu mikilvæga máli. Þess má geta að svo virðist sem að íslensk stjórnvöld hafi ekki enn komið mótmælum á framfæri til breskra stjórnvalda, né sent afrit af slíkum mótmælum til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og NATO. Það vekur ennfremur furðu okkar að engar beinar viðræður hafi farið fram á milli forsætisráðherra Íslands og Bretlands síðan að hryðjuverkalögunum var beitt þann 8. október síðastliðinn. InDefence hópurinn vonast til þess að núverandi ríkisstjórn Íslands muni beita sér af meira afli við að verja hagsmuni þjóðarinnar gagnvart ólögmætum aðgerðum og ósanngjörnum kröfum breskra stjórnvalda. Hópurinn býðst jafnframt til þess að veita íslenskum stjórnvöldum aðstoð og ráðgjöf í þessu máli, ef það getur orðið að gagni."
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira