Innlent

108 óku of hratt á Miklubraut á einum klukkutíma

MYND/Hari

Brot 108 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, að Rauðarárstíg. „Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 971 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11 prósent, of hratt eða yfir afskiptahraða," segir í tilkynningu frá lögreglu.

Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87. Á áðurnefndum hluta Miklubrautar hafa orðið nokkur umferðaróhöpp og var vöktunin meðal annars tilkomin vegna þess.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×