Tapaði meiðyrðamáli vegna meintra rassskella 18. febrúar 2009 11:38 Leiðbeinandi í Vinnuskóla Reykjavíkur tapaði meiðyrðamáli vegna uppsagnabréfs í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Reykjavíkurborg og aðstoðarskólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur voru sýknuð af meiðyrðarkröfu rúmlega fimmtugs manns vegna uppsagnarbréfs í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn hafði verið sakaður um kynferðislega áreitni sem leiðbeinandi í vinnuskólanum árið 2005. Þá var því haldið fram að hann hafi átt til að snerta stúlkur á óæskilegum stöðum til þess að koma þeim af stað til vinnu, til að mynda með því að rassskella þær. Þá var hann jafnframt sakaður um að hafa ýtt undir rassinn á nokkrum stúlknanna þar sem þær voru að klifra á Ásmundarsafni í fræðsluferð sumarið 2003. Eftir að málið komst upp þá fékk maðurinn uppsagnarbréf frá skólanum sem í stóð: „Ástæða uppsagnarinnar hefur verið kynnt þér en hún snýst um óásættanlega hegðun við kvenkyns nemendur skólans. Frá nemendum í þremur árgöngum skólans hefur yfirstjórn hans borist frásagnir af ítrekuðum snertingum þínum við stúlkur sem eru klárlega á skjön við það sem getur talist eðlileg hegðun leiðbeinanda á vinnustað." Maðurinn hélt fram sakleysi sínu en viðurkenndi að hafa snert krakkana, þá einungis með þeim hætti að taka um axlir þeirra eða eitthvað í þeim dúr, eins og hann orðaði það. Hann heimtaði að nafn sitt yrði hreinsað og úr varð að málinu var vísað til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn leiddi í ljós að ekki þótti ástæða til þess að ákæra manninn fyrir meinta háttsemi, hún hafi í það minnsta ekki verið saknæm. Það var svo nú í ár sem maðurinn vildi hreinsa nafn sitt og fór í meiðyrðamál vegna uppsagnabréfsins við borgina og aðstoðarskólastjóra vinnuskólans, sem sendi honum bréfið. Borgin og aðstoðarskólastjórinn voru sýknaðir af kröfu fyrrum leiðbeinandas en í dómsorði segir: Í bréfinu er því aðeins verið að vísa til frásagna sem yfirstjórn vinnuskólans hafði borist af ítrekuðum snertingum stefnanda sem sé hegðun sem að mati stjórnenda skólans sé óásættanleg og felst ekki í orðum þessum ærumeiðing eða refsiverð aðdróttun samkvæmt tilvitnuðum ákvæðum almennra hegningarlaga.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Sjá meira